Hafrannsóknastofnun
Hafrannsóknastofnun
Hafrannsóknastofnun

Gjaldkeri 50% starf - Hafrannsóknastofnun

Hafrannsóknastofnun auglýsir eftir framúrskarandi einstaklingi inn í fjármálateymið okkar í starf gjaldkera. Starfið felur í sér vinnu við tekjubókhald stofnunarinnar og umsýslu reikninga. Starfsmaðurinn ber ábyrgð á því að reikningar séu greiddir, útgefnir og bókaðir á réttum tíma.

Um er að ræða 50% starf og er kostur ef umsækjandi getur hafið störf sem fyrst
Lögð er áhersla á að ráða lausnamiðaðan einstakling sem hefur góða færni í að vinna sjálfstætt sem og í teymi. Trúnaður og heilindi í meðferð fjármuna og upplýsinga er skilyrt.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ábyrgð á  á umsýslu og gerð reikninga og þjónustu sem snýr að því, þ.m.t greiðsla og útgáfa reikninga.
  • Afstemmingar og innheimta.
  • Frágangur fylgiskjala í skjala- og bókhaldskerfi stofnunarinnar.
  • Upplýsingagjöf um útskatt við skil á virðisaukaskatti.
  • Stuðla að  öflugri þjónustu við innri og ytri viðskiptavini.
  • Fylgja stefnum og áherslum stofnunarinnar og sviðs fjármála og upplýsingatækni frá einum tíma til annars.
  • Umsjón með ferðagreiðslukorti stofnunarinnar.
  • Úthlutun og stofnun verknúmera í verkbókhaldi.
  • Færsla samninga í tekjuáætlun stofnunarinnar.
  • Önnur verkefni sem starfsmanni eru falin af yfirmanni.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Stúdentspróf, menntun og eða reynsla sem nýtist í starfi.
  • 3-5 ára reynsla af gjaldkerastarfi er skilyrði.  
  • Þekking á fjárhagskerfum ríkisins (Orra) er kostur.
  • jákvætt viðmót og hæfni til að vinna í teymi 
  • Metnaður, frumkvæði og rík umbótahugsun 
  • Skipulagshæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum 
  • Framúrskarandi samskiptahæfileikar. 
  • Góð stafræn hæfni, einkunn í excel
  • Góð íslensku og ensku kunnátta
Auglýsing birt26. nóvember 2026
Umsóknarfrestur7. desember 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Fornubúðir 5, 220 Hafnarfjörður
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar