Söluskrifstofa Keahótela
Söluskrifstofa Keahótela
Söluskrifstofa Keahótela

Fulltrúi í hópabókunardeild | Sumarstarf - Keahótel

Við leitum að hressum starfskrafti með ríka þjónustulund til viðbótar við metnaðarfullt teymi.

Söludeildin vinnur náið með tekjustýringu og markaðsdeild í áframhaldandi uppbyggingu á einni stærstu hótelkeðju landsins.

Sumarstarf með möguleika á framtíðarstarfi.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Umsjón, úrvinnsla og utanumhald hópabókana á öllum hótelum Keahótela.
  • Umsjón með bókunarstöðu og bókunarbeiðnum.
  • Önnur tilfallandi verkefni innan söludeildar fylgja eftir sumarið, ef áhugi er á framtíðarstarfi.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Góð tölvukunnátta - Reynsla í Office 365 er kostur.
  • Áhugi á ferðamanna bransanum.
  • Frumkvæði og fagmennska.
  • Auga fyrir smáatriðum.
  • Hæfni til þess að vinna sjálfstætt sem og í teymi.
  • Gott vald á íslensku og ensku í töluðu og rituðu máli.

Keahótel ehf. rekur tíu hótel sem eru Hótel Borg, Sand Hótel, Apótek Hótel, Skuggi Hótel, Storm Hótel og Reykjavík Lights í Reykjavík, Hótel Kea á Akureyri, Sigló Hótel á Siglufirði, Hótel Grímsborgir og Hótel Katla í Vík í Mýrdal.

Sjá nánar um Keahótel

Keahótel er spennandi vinnustaður þar sem starfar samheldinn hópur með fjölbreyttan bakgrunn. Við leggjum áherslu á gott viðmót, þjónustulund, metnað, hæfni, og frumkvæði með það að leiðarljósi að skapa eftirsóknarvert og skilvirkt vinnuumhverfi og ánægða viðskiptavini.

---------------------------------------------------------------------------------------

Auglýsing birt24. mars 2026
Umsóknarfrestur14. apríl 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Suðurlandsbraut 14, 108 Reykjavík
Starfstegund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar