
Eimskip
Hlutverk Eimskips er að veita áreiðanlegar heildarlausnir í flutningum á sjálfbæran hátt með árangur viðskiptavina að leiðarljósi. Við höfum verið traustur samstarfsaðili í alþjóðlegum flutningum frá árinu 1914 og rekum 56 skrifstofur í 20 löndum með um 1.700 starfsmönnum. Við tryggjum viðskiptavinum okkar áreiðanlegar heildarlausnir í flutningum meðal annars með áætlunarsiglingum og rekstri gáma- og frystiskipa í Norður-Atlantshafi, hafnarþjónustu, landflutningum, vöruhúsa- og frystigeymsluþjónustu og alþjóðlegu skrifstofuneti í flutningsmiðlun.
Hjá Eimskip er lögð sérstök áhersla á að skapa jákvæða menningu með sterkri liðsheild, tækifærum til þróunar, hvatningu til að sýna frumkvæði, opnum skoðanaskiptum og góðri miðlun upplýsinga.

Framtíðarstarf í vöruhúsaþjónustu í Dreifingarmiðstöð
Vöruhúsaþjónusta Eimskips í Reykjavík leitar að þjónustulipru, drífandi starfsfólki sem vinnur vel í teymi og sýnir virðingu í samskiptum. Við leitum að einstaklingum sem endurspegla gildi Eimskips: liðsheild, framsækni, áreiðanleiki og virðing.
Um er að ræða framtíðarstörf í dagvinnu alla virka daga frá klukkan 08:00-16:00.
Hjá Dreifingarmiðstöð Eimskips starfar öflugur og samhentur hópur fólks í fjölbreyttum störfum sem snúa að þjónustu og dreifingu á vörum. Mikil áhersla er lögð á þjálfun og öryggismál hjá Eimskip og nýtur starfsfólk okkar góðs af stöðugri fræðslu og stuðningi, sem tryggir að öll séu vel undirbúin til að takast á við fjölbreytt verkefni og áskoranir.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Vörumóttaka og vöruafgreiðsla
- Losun og lestun flutningabíla
- Bóka vörur í birgðakerfi
- Samskipti og upplýsingamiðlun vegna vörusendinga
- Önnur tilfallandi störf
Menntunar- og hæfniskröfur
- Starfsreynsla á sviði vöruhúsaþjónustu er kostur
- Lyftararéttindi (J) er kostur
- Almenn tölvukunnátta
- Góð færni í íslensku og/eða ensku
- Góð þjónustulund, heiðarleiki og vönduð vinnubrögð
- Frumkvæði, stundvísi og góð framkoma
Fríðindi í starfi
- Heitur matur í hádeginu, fjölbreytt verkefni og góður starfsandi í samhentu teymi.
- Aðgangur að öflugu starfsmannafélagi sem m.a. rekur orlofshús um allt land
- Heilsu- og hamingjupakki sem inniheldur samgöngustyrk og styrki fyrir líkamsrækt, sálfræðiþjónustu og fleira.
Auglýsing birt16. júlí 2026
Umsóknarfrestur4. ágúst 2026
Tungumálahæfni
EnskaNauðsyn
ÍslenskaValkvætt
Staðsetning
Klettagarðar 15, 104 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
LyftaraprófSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (4)
Sambærileg störf (12)

Lagerstarfsmaður
Kappahl

Lagerstjóri hjá Santé!
Sante ehf.

Fullt starf á lager
Dyrabær

Starf í vöruhúsi hjá Coca-Cola á Íslandi
Coca-Cola á Íslandi

Starfsmaður á lager | Warehouse Employee
Embla Medical | Össur

Starfskraftur á lager Skútuvogi
Olís ehf.

Framtíðarstarf í vöruhúsi Garra!
Garri

Bílstjóri í flotdeild
Steypustöðin

Vörutínsla - helgar og kvöld / Order Picking – Evenings and Weekends
Bakkinn vöruhótel

Starfsmaður á lager
GKS innréttingar

Söluráðgjafi varahluta
Fastus

Starfsmaður á lager
Mítra ehf.