Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi
Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi

Fræðslustjóri

Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi (FSÞ) leitar að drífandi og lausnamiðuðum fræðslustjóra til að leiða fræðslu- og þekkingarstarf félagsins.

Í starfi fræðslustjóra felst annars vegar þróun og uppfærsla fræðsluefnis um Sameinuðu þjóðirnar, stofnanir þeirra, þróunarsamvinnu og heimsmarkmiðin (m.a. fræðslupakkar, greinaskrif, fræðsluerindi og efni fyrir vef og fræðsluvettvanga), og hins vegar daglegt utanumhald og þróun UNESCO-skólaverkefnisins. Það felur m.a. í sér regluleg samskipti og samstarf við skóla, kennara og samstarfsaðila, þróun kennsluefnis og námskeiða, eftirfylgni og gæðastýringu, sem og umsjón og uppfærslur á fræðsluefni á www.globalis.is.

Um er að ræða starf í 100% starfshlutfalli frá og með júní. Möguleiki á heimavinnu einn dag í viku.

Nánari upplýsingar veitir Vala Karen Viðarsdóttir, framkvæmdastjóri, í síma 552-6700 eða á netfanginu [email protected].

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Fræðslu- og kennsluefni; Þróa, uppfæra og miðla fræðsluefni og tengja SÞ/heimsmarkmið við skólastarf og fræðsluvettvanga. 

  • Almenn fræðsla um SÞ og stofnanir þess; undirbúningur fræðsluerinda, greinaskrifa og fræðsluefnis sem nýtist skólum, háskóla/framhaldsskólum og borgarasamfélagi. 

  • Umsjón með UNESCO-skólanetinu; regluleg samskipti við skóla og samstarfsaðila (m.a. UNESCO-nefndina og ASPnet), stuðningur og eftirfylgni, aðgerðaráætlun, uppgjör og þróun netsins í samræmi við samninga og verkáætlanir. 

  • Uppfærsla fræðsluefnis á vefsíðu, þar með talið Globalis og tengdu efni (efnisyfirsýn og fræðslutengd þróun) eftir því sem við á. 

  • Verkefna- og gæðastýring fræðsluverkefna; áætlanir, tímalínur, verkferlar, samhæfing við aðra starfsmenn og yfirsýn yfir árlegt verkefnaflæði fræðslu- og skólaverkefna. 

  • Faglegur stuðningur við Model UN og ungmennaverkefni eftir þörfum, m.a. með tengingu inn í skóla í gegnum UNESCO-skólanetið. 

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi (t.d. á sviði menntunar, alþjóðasamskipta, félagsvísinda, stjórnmálafræði eða sambærilegu).  

  • Reynsla af verkefnastjórnun og/eða utanumhaldi fræðslu- eða skólaverkefna er æskileg.  

  • Mjög góð hæfni í mannlegum samskiptum og sjálfstæðri vinnu, ásamt skipulagi og eftirfylgni.  

  • Góð færni í að skrifa og miðla efni á íslensku. 

  • Þekking eða reynsla af Sameinuðu þjóðunum og heimsmarkmiðum, fræðslustarfi og alþjóðasamvinnu er mikill kostur.  

  • Reynsla af efnisvinnu/útgáfu (t.d. handbækur, fræðslupakkar, vefefni) er kostur.  

Fríðindi í starfi
  • Sveigjanleiki í starfi. 

  • Fjölskylduvænt umhverfi.  

  • Íþróttastyrkur.  

Auglýsing birt5. maí 2026
Umsóknarfrestur19. maí 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
EnskaEnska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Sigtún 42, 105 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Almenn tölvukunnáttaPathCreated with Sketch.AlþjóðasamstarfPathCreated with Sketch.ÁreiðanleikiPathCreated with Sketch.CanvaPathCreated with Sketch.FacebookPathCreated with Sketch.Facebook Business ManagerPathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.Framkoma/FyrirlestarPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.GreinaskrifPathCreated with Sketch.ÍmyndarsköpunPathCreated with Sketch.InstagramPathCreated with Sketch.MailchimpPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Microsoft ExcelPathCreated with Sketch.Microsoft OutlookPathCreated with Sketch.Microsoft PowerPointPathCreated with Sketch.Microsoft WordPathCreated with Sketch.Samskipti í símaPathCreated with Sketch.Samskipti með tölvupóstiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.SveigjanleikiPathCreated with Sketch.TextagerðPathCreated with Sketch.TeymisvinnaPathCreated with Sketch.TwitterPathCreated with Sketch.VefumsjónPathCreated with Sketch.VerkefnastjórnunPathCreated with Sketch.WindowsPathCreated with Sketch.WordPress
Starfsgreinar
Starfsmerkingar