
Síminn
Síminn er traust og framsækið fyrirtæki á sviði fjarskipta og afþreyinga sem vill laða til sín framúrskarandi starfsfólk. Við erum fjölskylduvænn vinnustaður og leggjum áherslu á sterka liðsheild, hvetjandi starfsumhverfi og tækifæri til starfsþróunar og vaxtar.
Hjá okkur hefur þú aðgang að framúrskarandi mötuneyti, fyrsta flokks kaffihúsi ásamt frábæru samstarfsfólki auk þess sem boðið er upp á búningsaðstöðu fyrir starfsfólk.
Við viljum hafa gaman í vinnunni og bjóðum reglulega upp á fjölbreytta innanhúss viðburði af ýmsu tagi.
Ef þú ert að leita að spennandi verkefnum, frábæru samstarfsfólki og lifandi vinnuumhverfi þá er Síminn góður kostur fyrir þig.
Síminn hlaut jafnlaunavottun Jafnréttisstofu árið 2018, fyrst allra fjarskiptafyrirtækja á Íslandi. Í anda jafnréttisstefnu Símans hvetjum við öll kyn til að sækja um hjá Simanum.
Gildi Símans eru skapandi, fagleg og árangursdrifin.

Forstöðumaður sölu og viðskiptastýringar á fyrirtækjasviði Símans
Vilt þú leiða öflugt sölu- og viðskiptastjórateymi í hraðbreytilegu umhverfi þar sem fjarskiptalausnir, tækni og þjónusta skipta sköpum fyrir rekstur fyrirtækja?
Síminn leitar að metnaðarfullum og drífandi forstöðumanni sölu og viðskiptastýringar á fyrirtækjasviði Símans til að leiða vöxt og styrkja viðskiptasambönd við lykilviðskiptavini á fyrirtækjamarkaði.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Leiða og þróa sölu- og viðskiptastýringarteymi með skýrum markmiðum og mælanlegum árangri
- Móta og framkvæma sölu- og vaxtarstefnu í takt við heildarstefnu fyrirtækisins
- Byggja upp og viðhalda sterkum samskiptum við lykilviðskiptavini og samstarfsaðila
- Greina markaðstækifæri, samkeppnisumhverfi og nýjar tekjuleiðir
- Tryggja skilvirka ferla í sölu, tilboðsgerð, samningsgerð og eftirfylgni
- Vinna þvert á deildir t.a.m. tengt markaðsmálum, vörustýringu, þjónustu og tæknireksturs
- Fylgja eftir stefnumarkmiðum, árangursmælikvörðum (KPI), söluáætlunum og umbótaverkefnum
- Stuðla að sterkri menningu, samheldni og stöðugum umbótum innan teymisins
- Önnur tilfallandi verkefni og breytingar tengt umbótum, þróun starfs og starfsumhverfis
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af stjórnun söluteyma og eða viðskiptastýringar á fyrirtækjamarkaði, reynsla úr tækni- eða fjarskiptum kostur
- Gott tengslanet, áhugi og þekking á íslensku atvinnulífi
- Góð greiningarhæfni og reynsla af því að vinna með gögn og mælikvarða
- Þjónustulund og framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
- Geta til að starfa sem stjórnandi og framkvæmdaaðili sem tekur virkan þátt í sókn
- Drifkraftur, fagleg vinnubrögð og lausnamiðuð hugsun
- Hæfni til að takast á við breytingar
- Góð íslensku- og enskukunnátta, í ræðu og riti
Fríðindi í starfi
- Árlegur líkamsræktarstyrkur
- Aðgengi að velferðarþjónustu Heilsuverndar
- Rafmagnsbílastæði, hjólageymslur og búningsaðstaða
- Gleraugnastyrkur
- Afslættir af vörum og þjónustu Símans
- Samgöngustyrkur vegna vistvænna samgangna til og frá vinnu
- Námsstyrkir
Auglýsing birt3. febrúar 2026
Umsóknarfrestur15. febrúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
EnskaNauðsyn
Staðsetning
Ármúli 25, 108 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
FagmennskaFrumkvæðiMannleg samskiptiSjálfstæð vinnubrögðViðskiptasambönd
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (3)
Sambærileg störf (12)

Viðskiptastjóri lykilviðskiptavina á fyrirtækjasviði
Síminn

Vilt þú stýra sölu og þjónustu hjá Ljósleiðaranum?
Ljósleiðarinn

Sölufulltrúi
GreenFish

Deildarstjóri fyrirtækjaþjónustu
Sýn

Vörumerkjastjóri
Nathan hf.

Forstöðumaður hönnunardeildar
Vegagerðin

Viðskiptastjóri
Fortinet á Íslandi

Viðskiptastjóri – matvörusvið Danól
Danól

Mannauðsstjóri
Reykjanesbær

Sales Manager
Iceland Travel

Svæðisstjóri Norðurlands
Hreint ehf

Söludrifinn viðskiptastjóri
Straumur