Isavia / Keflavíkurflugvöllur
Isavia / Keflavíkurflugvöllur
Isavia / Keflavíkurflugvöllur

Flugvallarþjónusta á Keflavíkurflugvelli

Isavia leitar að ábyrgum, jákvæðum og lausnamiðuðum einstaklingi til starfa í Flugvallarþjónustu á Keflavíkurflugvelli. Flugvallarþjónusta gegnir lykilhlutverki í daglegum rekstri flugvallarins og sér um fjölbreytt verkefni sem snúa að öryggi, eftirliti, viðhaldi og vetrarþjónustu.

Starfið býður upp á fjölbreytt og krefjandi verkefni í lifandi umhverfi þar sem fagmennska, öryggisvitund og samvinna eru í forgrunni. Hér færðu tækifæri til að vinna utandyra, starfa með fjölbreyttum tækjabúnaði og taka þátt í verkefnum sem skipta sköpum fyrir örugga starfsemi Keflavíkurflugvallar.

Helstu verkefni

  • Eftirlit með flugbrautum, akbrautum og innviðum flugvallarins
  • Eftirlit með og umhirða á tækjum og búnaði flugvallarins
  • Björgunar- og slökkviþjónusta (ARFF)
  • Umsjón og framkvæmd snjóruðnings, hálkuvarna og annarra verkefna tengdra vetrarþjónustu
  • Viðhald flugvallarsvæða og umhverfis þeirra
  • Tækjavinna og önnur verkefni sem tengjast rekstri flugvallarins

Menntunar- og hæfnikröfur

  • Almenn ökuréttindi og meirapróf eru skilyrði
  • Stór vinnuvélaréttindi eru kostur
  • Reynsla af slökkvistörfum er kostur
  • Iðnmenntun, svo sem í bifvélavirkjun, vélvirkjun eða annarri menntun sem nýtist í starfi, er kostur
  • Góð íslensku- og enskukunnátta
  • Grunnþekking á tölvum
  • Góð öryggisvitund, ábyrgðarkennd og hæfni til að vinna í teymi
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum og geta til að bregðast við í krefjandi aðstæðum

Starfsstöð er á Keflavíkurflugvelli og bjóðum við upp á rútuferðir milli höfuðborgarsvæðisins og flugvallarins fyrir starfsfólk Isavia.

Isavia er vinnustaður þar sem við sýnum hvert öðru virðingu og erum heiðarleg gagnvart sjálfum okkur og öðrum. Við gætum þess að viðhalda gleðinni, erum hugrökk, uppbyggileg og tökum ábyrgð á eigin frammistöðu. Saman náum við árangri.

Umsóknarfrestur er til og með 24. ágúst 2026.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Davíð Arthur Friðriksson, vaktstjóri í flugvallarþjónustu, í gegnum netfangið [email protected]

Umsóknum skal fylgja ferilskrá ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir hæfni og áhuga á starfinu.

Við hvetjum áhugasama aðila, án tillits til kyns og uppruna, til að sækja um.

Vertu hluti af teyminu sem tryggir örugga og skilvirka starfsemi Keflavíkurflugvallar sem sinnir lykilhlutverki í íslensku samfélagi allan sólarhringinn, allt árið um kring.

Auglýsing birt11. ágúst 2026
Umsóknarfrestur24. ágúst 2026
Tungumálahæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Keflavíkurflugvöllur, 235 Reykjanesbær
Starfstegund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar