Sveitarfélagið Árborg
Sveitarfélagið Árborg
Sveitarfélagið Árborg

Félagsráðgjafi í barnateymi velferðarþjónustu Árborgar

Við erum að leita eftir áhugasömum og jákvæðum einstakling til að taka þátt í mikilvægum verkefnum innan barnateymis velferðarþjónustunnar. Í sveitarfélaginu Árborg, þar sem búa rúmlega 12 þúsund manns, er lögð áhersla á þverfaglegt samstarf og framsækið starf í velferðar-, frístunda- og skólaþjónustu. Fjölskyldusvið sinnir fjölbreyttri þjónustu við íbúa Árborgar með snemmtækan stuðning og farsæld barna að leiðarljósi.

Um er að ræða 100% starf sem er laust nú þegar og til 31.05.26

Starfið felur í sér að veita upplýsingar um þjónustu og veita öfluga ráðgjöf til forráðamanna í samræmi við lög um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 og Lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna. nr. 86/2021. Áhersla er lögð á snemmtæka íhlutun, samþætta þjónustu og þverfaglegt samstarf við önnur fagsvið og stofnanir.

Í Sveitarfélaginu Árborg búa rúmlega 12.000 íbúar og starfa um 1100 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Uppeldis- og foreldraráðgjöf, veitt í viðtölum og á heimilum fólks. 

  • Ráðgjöf og stuðningur við fjölskyldur.  

  • Málastjórn samþættrar þjónustu og ráðgjöf samkvæmt farsældarlögum. 

  • Mat á þörf fyrir þjónustu, úrræði og gerð þjónustu- og stuðningsáætlana. 

  • Þátttaka í þverfaglegri teymisvinnu innan og utan sveitarfélags. 

  • Reglubundin eftirfylgd og mat á árangri þjónustu. 

  • Móttaka, greining og úrvinnsla erinda og umsókna. 

  • Skýrslugerð og skráning. 

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Masterspróf í félagsráðgjöf 

  • Þekking og reynsla af vinnu með barnafjölskyldum innan opinberrar þjónustu er mikill kostur 

  • Góð samskiptahæfni, frumkvæði og hæfni til sjálfstæðrar vinnu. 

  • Reynsla af teymisvinnu og samþættri þjónustu er mikill kostur. 

  • Þekking á lögum og reglugerðum sem tengjast starfssviði velferðarþjónustu 

  • Færni í skráningu, greiningarvinnu og tölvukerfum opinberrar stjórnsýslu. 

Auglýsing birt6. október 2025
Umsóknarfrestur18. október 2025
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Austurvegur 2, 800 Selfoss
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar