Slippurinn Akureyri ehf
Slippurinn Akureyri ehf
Slippurinn Akureyri ehf

Ertu öflugur skipuleggjandi sem kann að leiða fólk og halda mörgum boltum á lofti?

Slippurinn Akureyri leitar að verkstjóra til að stýra hóp starfsmanna sem sinnir fjölbreyttum verkefnum á skipasviði fyrirtækisins.

Við leitum að drífandi og skipulögðum einstaklingi sem hefur gaman af því að vinna með fólki, taka ábyrgð og sjá til þess að verkefnin gangi vel fyrir sig. Starfið er fjölbreytt og krefst þess að viðkomandi hafi góða yfirsýn, geti forgangsraðað verkefnum og sé óhrædd/ur við að taka ákvarðanir þegar mikið er um að vera.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Skipulagning og dagleg stjórnun starfsmanna á verkstað
  • Úthlutun verkefna og eftirfylgni með framvindu þeirra
  • Samræming og stjórnun verkferla í samstarfi við aðra verkstjóra og deildir
  • Að tryggja góð vinnubrögð, gæði og skilvirkni
  • Að stuðla að góðum starfsanda og öflugu samstarfi
  • Að tryggja að öryggisreglum og verklagi sé fylgt á vinnusvæði
  • Umsjón og skipulag verkefna sem tengjast meðal annars háþrýstiþvotti, yfirborðsmeðhöndlun og málningarvinnu
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Er skipulagður, úrræðagóður og með góða yfirsýn
  • Hefur hæfni og áhuga á að leiða fólk
  • Getur forgangsraðað og brugðist hratt við breyttum aðstæðum
  • Er lausnamiðaður og sýnir frumkvæði í starfi
  • Leggur áherslu á öryggi, gæði og góð vinnubrögð
  • Á auðvelt með samskipti og samstarf
  • Reynsla af verkstjórn er kostur og reynsla af málningarvinnu, yfirborðsmeðhöndlun og/eða háþrýstiþvotti er sérstaklega vel séð.
Auglýsing birt7. október 2026
Umsóknarfrestur25. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Naustatangi 2, 600 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.ÁkveðniPathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.LeiðtogahæfniPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Metnaður
Starfsgreinar
Starfsmerkingar