
HS Veitur hf
HS Veitur eru framsækið þekkingar- og þjónustufyrirtæki í veitustarfsemi sem telst til mikilvægra innviða. Hjá HS Veitum starfa um 100 starfsmenn á fjórum starfstöðvum sem sinna margvíslegum störfum. Fyrirtækið þjónar mörgum af stærstu fyrirtækjum landsins og eru íbúar á veitusvæði HS Veitna rúmlega 84 þúsund.
Í fyrirtækinu ríkir jákvæður starfsandi sem einkennist af sterkri liðsheild og virðingu í samskiptum.

Verkstjóri veitukerfa vatnsmiðla á Suðurnesjum
HS Veitur leita að metnaðarfullum og drífandi einstaklingi í starf verkstjóra veitukerfa vatnsmiðla á Suðurnesjum.
Verkstjóri veitukerfa vatnsmiðla ber ábyrgð á stjórnun framkvæmdaflokka, yfirumsjón með viðgerðum og daglegum rekstri, viðhaldsverkefnum og nýframkvæmdum í veitukerfum vatns á Suðurnesjum. Verkstjóri fer fram með gott fordæmi og er leiðandi í góðri öryggismenningu. Verkstjóri vinnur náið með svæðisstjóra að hagkvæmum og öruggum rekstri vatnsdreifikerfisins og góðri þjónustu við viðskiptavini á veitusvæðinu.
Viðkomandi þarf að hafa góða stjórnunar- og samskiptahæfileika og kunnáttu til að leysa fjölbreytt og krefjandi verkefni.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Stjórnun og stuðningur við starfsfólk framkvæmdaflokka
- Tryggja öryggi á verkstað og að viðeigandi öryggisstöðlum sé fylgt
- Skipulagning rekstrar, nýframkvæmda, viðgerða og viðhaldsverkefna
- Aðgerðastjórn vegna bilana eða vegna framkvæmda í vatnsdreifikerfum
- Samskipti og eftirfylgni vegna verka sem unninn eru af ytri verktökum
Menntunar- og hæfniskröfur
- Meistarapróf í pípulögnum og eða menntun í öðrum véliðngreinum
- Reynsla af störfum við vatnsdreifikerfi er kostur
- Reynsla af stjórnun og leiðtogahæfileikar
- Áhugi á að byggja upp og viðhalda góðri öryggismenningu
- Þjónustulund, samskiptahæfni og skipulagshæfileikar
- Sjálfstæði í starfi og hæfni til að vinna undir álagi
Auglýsing birt7. október 2026
Umsóknarfrestur20. október 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Brekkustígur 36, 260 Reykjanesbær
Starfstegund
Hæfni
LeiðtogahæfniMannleg samskiptiMeistarapróf í iðngreinSjálfstæð vinnubrögðÞjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Sambærileg störf (11)

Verkstjóri í framleiðslu
Nói Síríus

Verkstjóri / verkefnastjóri í byggingarframkvæmdum
Landris Byggingar ehf.

Viknordik leitar að verkefnastjóra
VikNordik ehf.

Verkefnastjóri
TILDRA Byggingafélag ehf.

Pípulagningamaður / Plumber
S.Á.Lagnir ehf

Starfsmaður í áhaldahús Reykhólahrepps
Reykhólahreppur

Tæknimaður við myndun fráveitulagna
Stíflutækni

Pípari / Plumber
JBÓ Pípulagnir ehf.

Branch Operations Manager
Indie Campers

Pípulagningarmaður óskast til starfa
VikNordik ehf.

Verkstjóri
Garðlist ehf