

DevOps sérfræðingur / Full Stack forritari
Lagaviti er mjög öflug gervigreindarlausn sem beitir allra nýjustu gervigreindartækni á hverjum tíma – ekki bara cutting edge heldur hreinlega bleeding edge tækni. Þróun lausnarinnar felur í sér fjölmargar tæknilegar áskoranir sem hafa í mörgum tilvikum ekki verið leystar áður, auk þess sem lausnin hefur mjög jákvæð samfélagsleg áhrif.
Við leitum nú að öflugum og metnaðarfullum DevOps sérfræðingi sem vill bera ábyrgð á uppbyggingu, rekstri og áframhaldandi þróun tæknilegra innviða Lagavita. Þetta er lykilhlutverk þar sem þú mótar DevOps umhverfið frá grunni, tryggir áreiðanleika og öryggi kerfa og vinnur náið með þróunarteyminu að því að skila lausnum hratt og örugglega.
Þó að megináherslan sé á DevOps og rekstrarumhverfið muntu jafnframt taka þátt í þróun hugbúnaðar þegar verkefni kalla á það. Við leitum því að einstaklingi sem hefur sterkan tæknilegan grunn, hefur gaman af fjölbreyttum verkefnum og vill vinna á mörkum innviðareksturs, hugbúnaðarþróunar og gervigreindar.
DevOps og innviðir
- Bera ábyrgð á uppbyggingu, rekstri og þróun tæknilegra innviða Lagavita
- Uppbygging og viðhald CI/CD ferla
- Umsjón með skýjaumhverfum (GCP og/eða Azure)
- Sjálfvirknivæðing innviða (Infrastructure as Code)
- Rekstur Docker- og Kubernetes-umhverfa
- Eftirlit, bilanagreining og stöðugar umbætur á rekstri
- Umsjón með öryggismálum, aðgangsstýringum og afritunum
- Samstarf við þróunarteymi um útgáfur, afköst og áreiðanleika
Hugbúnaðarþróun
- Þátttaka í þróun og viðhaldi á kjarnakerfum Lagavita
- Þróun backend þjónusta og API-a
- Þátttaka í Full Stack verkefnum þegar þörf krefur
- Samþætting gervigreindarmódela og AI-workflows
- Þátttaka í tæknilegri stefnumótun og arkitektúr
Við leitum að einstaklingi sem hefur sterkan tæknilegan grunn og reynslu af DevOps vinnulagi, en getur jafnframt tekið þátt í almennri hugbúnaðarþróun.
Æskilegt er að umsækjandi hafi:
- Haldbæra reynslu af DevOps, kerfisstjórnun eða sambærilegu hlutverki
- Góða þekkingu á Linux
- Reynslu af GCP og/eða Azure
- Reynslu af Docker og Kubernetes
- Reynslu af CI/CD verkfærum (GitHub Actions, GitLab CI, Jenkins eða sambærilegt)
- Þekkingu á Infrastructure as Code (Terraform eða sambærilegt)
- Góða færni í Python og/eða JavaScript/TypeScript
- Reynslu af scripting (Bash, Python eða sambærilegt)
- Skipulögð vinnubrögð, frumkvæði og lausnamiðaða hugsun
- Reynslu af Prometheus, Grafana, ELK eða sambærilegum lausnum
- Reynslu af backend eða Full Stack þróun
- Þekkingu á gagnagrunnum, SQL og NoSQL
- Reynslu af gervigreind, LLM API, RAG eða sambærilegum lausnum
- Reynslu af skalanlegum kerfum og hugbúnaðararkitektúr
- Sterka tilfinningu fyrir öryggi, gæðum og áreiðanleika
- Einstakt tækifæri til að bera ábyrgð á DevOps og innviðauppbyggingu öflugrar gervigreindarlausnar
- Mikil áhrif á tæknilega stefnu, arkitektúr og þróun lausnarinnar
- Tækifæri til að vinna með nýjustu (cutting edge og bleeding edge) gervigreindartækni
- Fjölbreytt verkefni sem spanna DevOps, hugbúnaðarþróun og gervigreind
- Samstarf við mjög öflugt og metnaðarfullt teymi
- Samkeppnishæf kjör og góða vinnuaðstöðu
- Sveigjanlegt og nútímalegt starfsumhverfi
Frekari upplýsingar um starfið veitir Jóhannes Eiríksson, framkvæmdastjóri ([email protected]).
Áhugasamir eru hvattir til að senda inn umsókn hið fyrsta, þar sem ráðið verður í starfið óháð umsóknarfresti.
Íslenska
Enska










