Ævintýraborg við Nauthólsveg
Ævintýraborg við Nauthólsveg
Ævintýraborg við Nauthólsveg

Deildastjóri í Ævintýraborg við Nauthólsveg

Ævintýraborg við Nauthólsveg er 6 deilda leikskóli með 93 börnum. Í leikskólanum starfar samhentur og hlýr hópur sem leggur ríka áherslu á vellíðan, gleði og fagmennsku í starfi með börnum.

Leikskólinn er staðsettur í fallegu umhverfi þar sem Öskjuhlíð og Nauthólsvík eru hluti af okkar daglega uppeldis- og námsumhverfi.

Gildi leikskólans eru: Virðing - Vinátta - Vellíðan

Við trúum því að börn læri best í gegnum leik, forvitni og tengsl og að starfsfólk sem fær að njóta sín skapi bestu aðstæðurnar fyrir börnin.

Helstu áherslur okkar eru útinám, læsi, félagsleg færni og nám í gegnum leik þar sem forvitni og vellíðan barna er í fyrirrúmi.

Nú leitum við að öflugum og metnaðarfullum deildarstjóra sem vill taka þátt í þessu ævintýri með okkur.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Vinnur að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra.
  • Er hluti af stjórnunarteymi leikskólans.
  • Ber ábyrgð á að unnið sé eftir skólanámskrá.
  • Ber ábyrgð á stjórnun og skipulagningu starfsins á deildinni.
  • Ber ábyrgð á innra mati deildar.
  • Ber ábyrgð á samstarfi við foreldra og aðra fagaðila.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf til kennslu* (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Reynsla af starfi á leikskólastigi
  • Frumkvæði og metnaður í starfi.
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum.
  • Góð íslenskukunnátta og ritfærni (B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum).
  • Góð tölvukunnátta.
  • Hreint sakavottorð.
Fríðindi í starfi
  • Forgangur í leikskóla og afslátt af dvalargjaldi.
  • Menningarkort: sund, söfn, bókasöfn.
  • Heilsuræktarstyrk.
  • Samgöngustyrk
  • 36 stunda vinnuviku fyrir fullt starf
Auglýsing birt31. maí 2026
Umsóknarfrestur15. júní 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Nauthólsvegur 83, 102 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.JákvæðniPathCreated with Sketch.KennariPathCreated with Sketch.KennslaPathCreated with Sketch.SamviskusemiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.SkipulagPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.Þolinmæði
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar