Leikskólinn Akrasel
Leikskólinn Akrasel

Leikskólakennari óskast í leikskólann Akrasel á Akranesi

Leikskólakennarar óskast til starfa við leikskólann Akrasel, Ketilsflöt 2, 300 Akranes frá og með ágúst 2026. Akrasel er sex til sjö deilda leikskóli. Leikskólinn er opinn frá klukkan 7:30 til 16:30 og skiptast starfmenn á að vinna á vöktum.

Kjörorð okkar eru: Náttúra - Næring - Nærvera Akrasel er UNESCO og grænfána leikskóli sem leggur áherslu á umhverfismennt, hollt mataræði og vellíðan.

Í Akraseli ríkir góður starfsandi þar sem fagmenska, léttleiki og hjálpsemi er höfð að leiðarljósi.

    Helstu verkefni og ábyrgð
    • Vinnur samkvæmt starfslýsingu leikskólakennara að uppeldi og menntun leikskólabarna.
    • Tekur þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldrasamstarfs undir stjórn deildastjóra
    • Tekur þátt í starfi skólans og verkefnum eftir því sem skipulag og áherslur skólans segja til um
    • Vinnur í nánu samstarfi við foreldra/forráðamenn barnanna.
    Menntunar- og hæfniskröfur

    Leyfisbréf kennara - Kennaramenntun

    Áhugi, reynsla og hæfni í starfi með börnum

    Jákvæðni, lipurð og góð færni í samskiptum

    Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð

    Góð íslenskukunnátta skilyrði

    Hreint sakavottorð

    Nánari upplýsingar um starfið veita Anney Ágústsdóttir leikskólastjóri  [email protected]

    og Sigurrós Ingimarsdóttir staðgengill aðstoðarleikskólastjóra, [email protected]

    Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitafélaga og Kennarasambands Íslands.

    Auglýsing birt29. maí 2026
    Umsóknarfrestur8. júní 2026
    Tungumálahæfni
    ÍslenskaÍslenska
    Nauðsyn
    Mjög góð
    Staðsetning
    Ketilsflöt 2, 300 Akranes
    Starfstegund
    Hæfni
    PathCreated with Sketch.Teymisvinna
    Starfsgreinar
    Starfsmerkingar