

Deildarstjóri tæknirekstrar
Við leitum að öflugum og framsýnum deildarstjóra tæknirekstrar með drifkraft til að leiða rekstur og þróun tæknilegra innviða RÚV.
Deildarstjóri tæknirekstrar gegnir lykilhlutverki innan RÚV og leiðir öflugt teymi sérfræðinga sem ber ábyrgð á tæknilegum innviðum og þjónustu fyrirtækisins.
Undir tæknirekstur heyra meðal annars netinnviðir, kerfisrekstur, gagnageymslur, innviðir útvarps- og sjónvarpskerfa, notendabúnaður og tæknileg þjónusta.
RÚV starfar samkvæmt ISO 27001 staðlinum og leggur ríka áherslu á upplýsingaöryggi, rekstraröryggi og framúrskarandi þjónustu.
Deildarstjóri heyrir undir framkvæmdastjóra stafrænnar þróunar og tekur virkan þátt í að móta stafræna framtíð RÚV.
- Leiða rekstur, þjónustu og þróun tæknilegra innviða RÚV.
- Tryggja öruggan og stöðugan rekstur tækni innviða.
- Leiða notendaþjónustu við starfsfólk og hafa yfirumsjón með innleiðingar- og endurnýjunarverkefnum.
- Stýra samstarfi við birgja og þjónustuaðila.
- Hafa umsjón með innkaupum, samningum og fjármálum deildarinnar ásamt framkvæmdarstjóra.
- Leiða umbætur og þróun með áherslu á skilvirkni, sjálfvirknivæðingu og nýtingu nýrrar tækni.
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
- Farsæl reynsla af rekstri umfangsmikils tæknilegs umhverfis, þar á meðal tæknibúnaðar og upplýsingatæknikerfa.
- Sterk leiðtogahæfni, umbótahugsun og framúrskarandi samskiptahæfni.
- Reynsla að leiða breytingar og innleiðingarverkefni þvert á ólíkar deildir og fagsvið.
- Þekking og áhugi á möguleikum gervigreindar og sjálfvirknivæðingar.
- Þekking eða reynsla á sviði upplýsingaöryggis, til dæmis tengd ISO 27001, er kostur.
Af hverju RÚV?
Hjá RÚV færðu tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif og leiða mikilvæga tæknilega uppbyggingu hjá stærsta fjölmiðli landsins. Þú tekur þátt í endurnýjun og stafrænni þróun og mótar þá innviði sem tryggja að þjónusta og efni RÚV berist til allrar þjóðarinnar.
Engir tveir dagar eru eins. Kosningavökur, landsleikir, eldgos og venjulegur þriðjudagur kalla á ólíkar lausnir og gera mismunandi kröfur til tækninnar og fólksins sem heldur henni gangandi. Starfið er því bæði fjölbreytt og krefjandi og árangurinn af því sem þú gerir er sýnilegur á hverjum degi.
Starfið býður jafnframt upp á alþjóðlegt samstarf við aðra almannaþjónustumiðla, þar sem tækifæri gefst til að miðla þekkingu, læra af öðrum og taka þátt í þróun sem nær út fyrir landsteinana.
Stefna RÚV er að þar starfi fjölbreyttur hópur fólks. Við hvetjum áhugasöm til að sækja um, óháð aldri, kyni, uppruna eða fötlun. RÚV er með starfsstöðvar í Reykjavík, Borgarnesi, Akureyri og Egilsstöðum.
Umsóknarfrestur er til og með 5. október.
Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda til að gegna starfinu í samræmi við áherslur í auglýsingu.
Umsóknir á erlendum tungumálum og umsóknir án viðeigandi umsóknargagna verða ekki teknar til greina.
Nánari upplýsingar veitir Hrefna Lind Ásgeirsdóttir framkvæmdarstjóri stafrænnar þróunnar, [email protected].
Íslenska
Enska










