Sunnulækjarskóli, Selfossi
Sunnulækjarskóli, Selfossi
Sunnulækjarskóli, Selfossi

Deildarstjóri stoðþjónustu í Sunnulækjarskóla

Auglýst er tímabundin staða deildarstjóra stoðþjónustu í 100% starfshlutfall frá 1. ágúst 2026 til 31. júlí 2027. Leitað er eftir áhugasömum og framsæknum grunnskólakennara sem vill kenna í skóla sem m.a. leggur áherslu á teymiskennslu, teymisvinnu og skapandi skólastarf.

Í Sunnulækjarskóla mynda kennarar og aðrir fagaðilar árgangs árgangateymi. Árgangateymin framkvæma og stjórna daglegu skólastarfi tiltekinna árganga eða námshópa í samvinnu við sína deildarstjóra sem vinna í stjórnendateymi. Góð teymisvinna er liður í að byggja upp jákvæðan starfsanda og sterkt lærdómssamfélag í skólanum.

Hlutverk deildarstjóra:

Deildarstjóri situr í stjórnendateymi skólans og starfar samkvæmt stefnu skólans sem tekur m.a. mið af menntastefnu Sveitafélagsins Árborgar, aðalnámskrá grunnskóla, lögum og reglugerðum um grunnskóla og lögum um farsæld barna. 

Deildarstjóri fer með mannaforráð og daglega verkstjórn. Hann þarf að vera öðrum góð fyrirmynd og öflugur ráðgjafi í krefjandi starfsumhverfi. Því skiptir þekking deildarstjóra á viðfangsefnum skóla- og uppeldismála, farsæld og stuðningsúrræða gríðarlega miklu máli.

Í Sveitarfélaginu Árborg búa rúmlega 12.000 íbúar og starfa um 1100 manns hjá sveitarfélaginu. Lögð er áhersla á að skapa starfsumhverfi sem stuðlar að vellíðan og árangri þar sem starfað er af fagmennsku og góðum ásetningi með hag sveitarfélagsins að leiðarljósi.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Að vera faglegur leiðtogi sem yfirfærir sýn og stefnu skólans á skólastarfið með þróunarstarfi og þeim björgum og úrræðum sem við á hverju sinni til að ná þeim markmiðum 

  • Skapa góðan vinnuanda með því að hlúa að starfsmönnum. Stuðla að samvinnu, samkennd og samábyrgð gagnvart faglegu starfi skólans  

  • Samskipti við nemendur og rýni í dagleg störf starfsmanna með það að leiðarljósi að geta veitt ráðgjöf sem nýtist í þeim aðstæðum sem við á hverju sinni 

  • Sinna faglegri kennslufræðilegri forystu með áherslu á þróun í kennsluháttum 

  • Veita starfsfólki endurgjöf og leiðsögn 

  • Samskipti við grunnþjónustu skólans, s.s. foreldra, skólaþjónustu, heilsugæslu, fræðsluaðila o.s.frv. Þessi samskipti eiga ávallt að vera í þágu nemenda og starfsmanna 

  • Skipuleggja og leiða fundi í þágu skólastarfsins og skólaþróunnar 

  • Skipuleggur stundatöflur fagfólks í samráði við aðra stjórnendur 

  • Tekur þátt í störfum teyma og ráða innan skólans, í samráði við skólastjóra 

  • Önnur verkefni sem yfirmaður felur 

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Grunnskólakennararéttindi áskilin   

  • Þekking og reynsla af stoðþjónustu áskilin 

  • Menntun og reynsla í stjórnun æskileg 

  • Forystu- og stjórnunarhæfileikar 

  • Mikil hæfni í mannlegum samskiptum   

  • Skipulagshæfileikar 

  • Frumkvæði í starfi 

Auglýsing birt23. mars 2026
Umsóknarfrestur8. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
Staðsetning
Norðurhólar 1, 800 Selfoss
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.Skipulag
Starfsgreinar
Starfsmerkingar