

Deildarstjóri sölu á öryggislausnum
Öryggismiðstöðin leitar að öflugum deildarstjóra sölu á öryggislausnum. Ef þú hefur brennandi áhuga á að leiða söluteymi og hefur reynslu af stjórnun, sölu- og samskiptum við viðskiptavini, þá viljum við heyra frá þér!
Lýsing á starfi:
Starfið felst í að leiða söluteymi öryggislausna hjá Öryggismiðstöðinni. Teymið samanstendur af öryggisráðgjöfum sem sinna sölu á fjölbreyttum öryggislausnum og þjónustu til heimila og minni fyrirtækja og viðskiptastjórum sem leiða sölu og samskipti við stærstu fyrirtæki og stofnanir landsins.
-
Leiða söluteymi öryggislausna með daglegri stjórnun
-
Setning sölumarkmiða, árangursmælinga og eftirfylgni þeirra
-
Stefnumótun sölu og þátttaka í áætlanagerð
-
Öflun viðskiptasambanda og samskipti við lykilviðskiptavini
-
Sölustuðningur og aðkoma að kynningu lausna fyrir núverandi og tilvonandi viðskiptavini
-
Yfirumsjón með tilboðsgerð og stærri útboðum
-
Yfirumsjón við samningagerð við viðskiptavini
-
Viðhalda þjálfun, þekkingu og ánægju starfsfólks
-
Leiðtogahæfni og samskiptahæfileikar ásamt metnaði til þess að leiða öflugt sölustarf
-
Reynsla af stjórnun og rekstri söluteyma er nauðsynleg
-
Hæfni til þess að halda kynningar og setja fram upplýsingar á skýran hátt er nauðsynleg.
-
Háskólamenntun eða menntun á sviði tækni-/raf-iðngreina eða sambærileg menntun er nauðsynleg.
-
Skipulagshæfileikar og frumkvæði til að afla sér nýrrar þekkingar er nauðsynleg.
-
Áhugi, forvitni og skilningur á tæknilegum lausnum og hugbúnaði er nauðsynlegur.
-
Mjög gott vald á íslensku og ensku, bæði í töluðu og rituðu máli.
Íslenska
Enska










