
Héðinn
Héðinn er leiðandi fyrirtæki í málmiðnaði og véltækni með yfir 100 ára reynslu af þjónustu við sjávarútveg, stóriðju og orkuiðnað, bæði hérlendis og erlendis.
Hjá fyrirtækinu starfa um 150 manns við fjölbreytt störf, allt frá hönnun að fullbúnum vörum ásamt viðhalds- og þjónustuverkefnum um allan heim.
Héðinn leitast við að veita samkeppnishæfa þjónustu á öllum sviðum og leggur mikið upp úr góðri starfsaðstöðu og aðbúnaði. Að auki leggur fyrirtækið áherslu á að fylgja framþróun í tækjakosti eins og unnt er til að auðvelda störf og auka gæði og framleiðni.
Starfsemin snýst einkum um fjölbreytta málmsmíði, vélaviðgerðir, endurnýjun og viðhald og helstu viðskiptavinir eru sjávarútvegsfyrirtæki, orkufyrirtæki, stóriðjufyrirtæki, sveitarfélög og önnur málmiðnaðarfyrirtæki.
Stærstu verkefnin í dag eru fyrir sjávarútveginn og stóriðju. Þessi verkefni spanna allt frá því að reisa fiskimjölsverksmiðjur á Íslandi eða úti í heimi yfir í umhverfisvæna nýsköpun, viðgerðir og smíði.
Héðinn rekur fimm starfsstöðvar en meginþorri starfsfólks starfar í höfuðstöðvum félagsins við Gjáhellu. Aðrar starfsstöðvar eru þjónustuverkstæði á Grundartanga og útibú á Akureyri og í Noregi.
Húsakynnin við Gjáhellu eru 8.000 fermetrar og lóðin 20.000 fermetrar. Í húsinu er mötuneyti fyrir starfsfólk og glæsileg líkamsræktaraðstaða. Að auki hefur nýverið tekið í notkun stórglæsilegt afþreyingarrými fyrir starfsmenn með golf- og skothermi, píluspjöldum og fleiru sem starfsmenn geta nýtt sér utan vinnutíma.

Bókari
Héðinn hf, eitt öflugasta véltæknifyrirtæki landsins, leitar að bókara með góða þekkingu á bókhaldi og uppgjörsvinnu.
Við leitum að einstaklingi sem vinnur af nákvæmni, hefur ríka þjónustulund og metnað fyrir vönduðu reikningshaldi.
Helstu verkefni eru almenn bókhaldsstörf s.s. daglegar bókanir og afstemmingar.
Um er að ræða viðbótarstöðu í öflugu og reynslumiklu teymi þar sem ríkur góður starfsandi og fagmennska.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Daglegar bókanir og afstemmingar.
- Undirbúningur bókhalds fyrir mánaðarleg uppgjör.
- Aðstoð við mánaðarlega verkbókhaldsyfirferð.
- Þátttaka í umbótum og þróun innri ferla er tengjast reikningshaldi.
- Önnur tilfallandi störf á fjármálasviði.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun og/eða reynsla sem nýtist í starfi skilyrði.
- 3-5 ára reynsla af bókhaldi.
- Skipulagshæfni, sjálfstæði og nákvæm vinnubrögð.
- Góð þjónustulund og færni í mannlegum samskiptum.
- Hæfni í greiningu og framsetningu gagna.
- Þekking á Business Central er mikill kostur.
Fríðindi í starfi
- Niðurgreiddur morgun- og hádegismatur.
- Stórglæsilegt starfsmannarými með golf- og skothermi.
- Líkamsræktaraðstaða og búningsklefar með sturtu.
- Öflugt starfsmannafélag og frábær starfsandi.
Auglýsing birt30. mars 2026
Umsóknarfrestur8. apríl 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaNauðsyn
Staðsetning
Gjáhella 4, 221 Hafnarfjörður
Starfstegund
Hæfni
AfstemmingReikningagerðSamviskusemiSkipulagUppgjörVandvirkni
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Reikningagerð og móttaka - Verkstæði Vélrásar
Vélrás

Sérfræðingur í launamálum
Íslandsbanki

Bókari
Millibil ehf.

Aðalbókari
Snæland Grímsson

Skrifstofustjóri
Fagtækni

Aðalbókari
Pegasus

Leitum að öflugum bókara
Six Rivers Iceland ehf.

Financial Accountant (Part time)
Kara Connect

Bókvís ehf. / Atvinna - bókhald
Bókvís ehf

Sérfræðingur á fjármálasviði (Financial Controller)
Arctic Fish

Sérfræðingur í bókhaldi hjá ECIT Bókað ehf á Sauðárkrók
ECIT ehf.

Fjármála- og stjórnsýslusvið – Forstöðumaður reikningshalds
Reykjanesbær