Garðabær
Garðabær
Garðabær

Álftanesskóli - stuðningsfulltrúi

Álftanesskóli auglýsir eftir stuðningsfulltrúa í 100% skólaárið 2026-2027.

Álftanesskóli er grunnskóli fyrir nemendur í 1.-10. bekk. Í skólanum eru tæplega 400 nemendur og 75 starfsmenn. Áhersla er lögð á metnaðarfullt starf, vellíðan nemenda og umhverfisvernd. Í Álftanesskóla er áhersla lögð á að hver nemandi fái kennslu við hæfi til að þroska hæfileika sína – allir eru einstakir. Álftanesskóli starfar eftir hugmyndafræði og vinnuaðferðum Uppeldis til ábyrgðar- uppbygging sjálfsaga.

Leitað er eftir einstaklingum sem eru tilbúnir að starfa að sveigjanlegu starfi í teymisvinnu samkvæmt skólastefnu Álftanesskóla.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Aðstoða nemendur við daglegar athafnir og til virkrar þátttöku í skólastarfi
  • Vinna eftir áætlun sem deildarstjóri stoðþjónustu, kennari eða þroskaþjálfi hefur útbúið
  • Aðstoða nemendur við að fylgja settum reglum um hegðun, umgengni og vinnubrögð
  • Leitast er við að styðja nemendur í félagslegum samskiptum innan og utan kennslustunda
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Íslenskukunnátta á stigi C-1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
  • Uppeldismenntun sem nýtist í starfi er kostur
  • Reynsla af starfi með börnum og/eða unglingum er kostur
  • Ríkir samstarfs- og samskiptahæfileikar
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Dugnaður, jákvæðni og ábyrgðarkennd
Fríðindi í starfi

Hlunnindi fyrir starfsmenn sem ráðnir eru í starfshlutfall:

  • Heilsuræktarstyrkur að upphæð 20.000 kr. eftir 6 mánuði í starfi
  • Bókasafnskort eftir 3 mánuði í starfi
  • Menningarkort eftir 3 mánuði í starfi
  • Sundlaugarkort eftir 3 mánuði í starfi
  • Starfsfólk í skólum Garðabæjar hefur möguleika á að sækja um styrki í Þróunarsjóði leik- og grunnskóla Garðabæjar og er þeim ætlað að stuðla að nýbreytni og framþróun í starfi.

Árshátíð er starfsmönnum að kostnaðarlausu
Íslenskunámskeið fyrir erlenda starfsmenn

Auglýsing birt13. ágúst 2026
Umsóknarfrestur26. ágúst 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Framúrskarandi
Staðsetning
Garðatorg 7, 210 Garðabær
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.AðlögunarhæfniPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.Mannleg samskiptiPathCreated with Sketch.Sjálfstæð vinnubrögðPathCreated with Sketch.StundvísiPathCreated with Sketch.SveigjanleikiPathCreated with Sketch.Teymisvinna
Starfsgreinar
Starfsmerkingar