

Nesskóli óskar eftir stuðningsfulltúa og frístundarleiðbeinanda
Laus staða stuðningsfulltrúa og starfsmanna í frístund
Nesskóli, Neskaupstað, auglýsir eftirfarandi stöður:
-
blandaða stöðu stuðningsfulltrúa og frístundastarfsmanns, vinnutími 8:00 – 16:00 alla daga vikunnar. Um framtíðarstarf getur verið að ræða.
Það er möguleiki á að skipta starfinu upp og ráða í frístundastarfið og stuðningsfulltrúastarfið sér ef ekki næst að ráða starfsmann í fullt starf.
Áhugasamir einstaklingar, eru hvattir til að sækja um.
Helstu verkefni og ábyrgð
Stuðningsfulltrúar aðstoða nemendur náms- og félagslega með það að markmiði að auka færni þeirra og sjálfstæði. Oft er um að ræða nemendur sem þurfa sérstök úrræði vegna námserfiðleika, félagslegra aðstæðna, fötlunar eða þroskafrávika.
Frístundaleiðbeinendur. Gerð er krafa um verkkunnáttu og starfsreynslu sem nýtist í starfi. Mikilægt er að starfsmenn hafi ánægju að vera úti með nemendum og áhuga á fjölbreyttum verkefnum. Starfsmenn vinna með börnum á yngsta stigi.
Menntunar- og hæfniskröfur
Leitað er að einstaklingum með góða hæfni í mannlegum samskiptum sem eru reiðubúnir að leggja sig fram við að mæta þörfum allra barna í góðu samstarfi við foreldra og samstarfsfólk.
Hæfniskröfur:
-
Reynsla af vinnu með börnum er æskileg
-
Góðir skipulagshæfileikar
-
Lipurð og sveigjanleiki í starfi
-
Góð íslenskukunnátta
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Íslenska










