
Brimborg
Brimborg er eitt öflugasta fyrirtæki landsins á bílamarkaði með umboð fyrir mörg af þekktustu bílamerkjum heims eins og Volvo, Ford, Polestar, Mazda, Citroën, Peugeot og Opel ásamt Volvo vörubílum, Volvo vinnuvélum og Volvo Penta bátavélum. Brimborg er umsvifamikið í innflutningi, sölu, þjónustu og útleigu á farar- og flutningatækjum til atvinnurekstrar eða einkanota og býður meðal annars hjólbarða frá Nokian og útleigu bíla frá Dollar og Thrifty. Fyrirtækið rekur í dag bílaumboð, bílasölu fyrir fólksbifreiðar, atvinnubíla- og atvinnutæki, bílaleigu og víðtæka varahluta- og verkstæðisþjónustu fyrir bíla og atvinnutæki.
Starfsstöðvar Brimborgar eru í dag átta talsins í Reykjavík, Hafnarfirði, Reykjanesbæ og á Akureyri. Þótt auður hvers fyrirtækis felist að miklu leyti í góðu skipulagi og rekstri er mannauðurinn ekki síður mikilvægur. Þar hefur Brimborg miklu láni að fagna og margir af ríflega 300 starfsmönnum fyrirtækisins hafa starfað hjá því í yfir 20 ár. Þetta er þrautþjálfað fólk með mikla reynslu og þekkingu og slík tryggð starfsmanna við fyrirtæki í harðri samkeppni er ómetanleg.
Brimborg býður upp á breitt úrval starfa, tímabundin sem og ótímabundin og tökum vel á móti nemum til okkar sem hyggjast stefna að fagmennsku í bifvélavirkjun og/eða vélvirkjun. Öll okkar verkstæði eru gæðavottuð frá Bílgreinasambandinu en Brimborg rekur alls 10 verkstæði.

Afhendingarfulltrúi
Brimborg ehf óskar eftir að ráða starfskraft í starf afhendingarfulltrúa
Helstu verkefni og ábyrgð
- Afleysing Rekstrarstjóra
- Nýskrá bíla
- Skipuleggja flutninga bíla úr tolli
- Skráningarskoða dráttarkróka
- Skráningarskoða bíla
- Afhenda bíla til söluráðgjafa
- Vera tengiliður við aðrar deildir/svið
- Skrifa út reikninga
Menntunar- og hæfniskröfur
- Tryggja flæði tækja í gegnum afhendingarferli
- Upplýsa viðeigandi aðila ef skemmdir finnast/verða á ökutæki í afhendingarferlinu
- Upplýsa viðeigandi aðila ef tafir verða á afhendingarferlinu
- Tryggja að afhendingarferli gangi snurðulaust fyrir sig
- Tryggja að allir þjónustuþættir hafi verið framkvæmdir áður en ökutæki er afhent
Fríðindi í starfi
Fjölbreytt fríðindi skv. mannauðsstefnu Brimborgar
- Niðurgreiddur hádegismatur
- Afsláttur af vinnu og þjónustu fyrirtækisins
- Árlegur íþrótta- og heilsustyrkur
Auglýsing birt23. ágúst 2025
Umsóknarfrestur9. september 2025
Tungumálahæfni

Nauðsyn

Nauðsyn
Staðsetning
Bíldshöfði 6, 110 Reykjavík
Starfstegund
Hæfni
FrumkvæðiHreint sakavottorðJákvæðniMetnaðurÖkuréttindiSamskipti með tölvupóstiSamviskusemiSjálfstæð vinnubrögðSkipulagStundvísiÚtkeyrslaÞjónustulund
Vinnuumhverfi
Starfsgreinar
Starfsmerkingar
Fleiri störf (1)
Sambærileg störf (12)

Aðstoð á tannlæknastofu
Tannlæknaþjónustan

Mýrarhúsaskóli - mötuneyti
Skólamatur

Starfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk – Smárahvammur
Hafnarfjarðarbær

Starfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk - Straumhvörf
Hafnarfjarðarbær

Starfsfólk á þjónustukjarna fyrir fatlað fólk - Drekavellir
Hafnarfjarðarbær

Evening jobs in cleaning / Störf við ræstingar á kvöldin. KEFLAVÍK
Dictum

Aðstoð á tannlæknastofu
Tannréttingar sf

Skólaliðar
Waldorfskólinn í Lækjarbotnum

Skemmtilegt starf í Keflavík!
NPA miðstöðin

Stapaskóli - mötuneyti
Skólamatur

Tanntæknir eða aðstoðarmanneskja tannlæknis
Tannlæknastofan Valhöll ehf.

Starfsmaður í verksmiðju
Góa-Linda sælgætisgerð