Sameignarfélag Ölfusborga
Sameignarfélag Ölfusborga

Aðstoðarmaður Umsjónarmanns

Sameignafélagið í Ölfusborgum óskar eftir að ráða aðstoðarmann umsjónarmanns orlofsbyggðarinnar í fullt starf.

Starfið felur í sér fjölbreytt verkefni tengd umhirðu og viðhaldi orlofshúsa og umhverfis í fallegu umhverfi Ölfusborga. Aðstoðarmaður vinnur náið með umsjónarmanni, sinnir samskiptum við aðildarfélög og gesti, ásamt því að sjá um almenn viðhalds- og þrifaverkefni. Starfið hentar vel einstaklingi sem hefur gaman af útivinnu, fjölbreytileika í verkefnum og nýtur þess að starfa í góðum félagsskap.

Almennur vinnutími er frá 08:15–17:00 alla virka daga.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Almenn umhirða orlofshúsa og umhverfis.

  • Eftirlit innanhúss eftir hverja veru og þrif eftir þörfum.

  • Viðhald utanhúss, aðallega málningarvinna (steinveggir, timburverk og sólpallar).

  • Samskipti við aðildarfélög og starfsmenn þeirra.

  • Aðstoð við móttöku gesta og dagleg verkefni samkvæmt þörfum.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Almennt bílpróf er skilyrði.

  • Vinnuvélaréttindi er kostur.
  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði.

  • Enskukunnátta er æskileg.

  • Reynsla af þjónustustörfum er æskileg.

  • Reynsla eða menntun í byggingariðnaði er æskileg.

Auglýsing birt20. janúar 2026
Umsóknarfrestur29. janúar 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Mjög góð
EnskaEnska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Ölfusborgir 172344, 816 Ölfus
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.FagmennskaPathCreated with Sketch.Fljót/ur að læraPathCreated with Sketch.FrumkvæðiPathCreated with Sketch.HandlagniPathCreated with Sketch.HeiðarleikiPathCreated with Sketch.Hreint sakavottorðPathCreated with Sketch.MálningarvinnaPathCreated with Sketch.MetnaðurPathCreated with Sketch.ÖkuréttindiPathCreated with Sketch.ReyklausPathCreated with Sketch.SmíðarPathCreated with Sketch.SnyrtimennskaPathCreated with Sketch.TóbakslausPathCreated with Sketch.VeiplausPathCreated with Sketch.Þjónustulund
Starfsgreinar
Starfsmerkingar