

Aðstoðarleikskólastjóri - Leikskólinn Vesturkot
Leikskólinn Vesturkot óskar eftir öflugum og metnaðarfullum aðstoðarleikskólastjóra.
Leikskólinn er fjögra deilda, staðsettur á Holtinu þar sem stutt er í ósnortna náttúruna. Stefna leikskólans tekur mið af lærdómsamfélaginu þar sem áhersla er lögð á að allir séu virkir þátttakendur í að móta og þróa skólastarfið og því leggjum við mikla áherslu á teymisvinnu. Einkunnarorð leikskólans eru leikur, samvinna og virðing.
Unnið er samkvæmt SMT skólafærni þar sem lögð er áhersla á að nálgast börn á jákvæðan hátt, gefa góðri hegðun meiri gaum og skapa jákvæð og uppbyggileg samskipti. Við erum Heilsueflandi vinnustaður, vináttuleikskóli Barnaheilla, vinnum að snemmtækri íhlutun í málþroska barna og umhverfismennt er hluti af okkar starfi. Góð samvinna allra, vellíðan og starfsáægja teljum við að þurfi að vera til staðar til að geta byggt upp metnarfullt og faglegt leikskólstarf þess vegna leggjum við áherslu á slíkt starfsumhverfi.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Vinnur að og ber ábyrgð á, ásamt leikskólastjóra, að unnið sé eftir aðalnámskrá leikskóla og skólanámskrá leikskólans, að áætlanir þar um séu gerðar og reglulegt mat fari fram
- Er aðstoðarmaður leikskólastjóra og staðgengill hans
- Sinnir, ásamt leikskólastjóra, skipulagi skólastarfsins dag frá degi
- Leiðbeinir inn í fagstarf hverrar deildar og sinnir snemmbærum stuðningi við nemendur með ólíkan menningarlegan bakgrunn og tungumál
- Sér um samskipti og samvinnu við foreldra í samráði við leikskólastjóra
- Situr foreldrafundi, sem haldnir eru á vegum leikskólans
- Önnur verkefni skv. starfslýsingu og sem yfirmaður felur starfsmanni
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Leyfisbréf sem kennari (leyfisbréf fylgi umsókn)
- Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar eða uppeldis- og/eða kennslufræða kostur
- Stjórnunarreynsla kostur
- Reynsla af starfi á leikskóla og leikskólakennslu skilyrði
- Góð tölvukunnátta
- Góð íslenskukunnátta
- Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Góð samstarfs- og samskiptahæfni
- Skilyrði er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.
Nánari upplýsingar veitir Inga Þóra Ásdísardóttir leikskólastjóri, [email protected] og í síma 664-5899 eða Guðrún Sólveig, [email protected]
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við KÍ v/ Félags stjórnenda leikskóla.
Umsóknarfrestur er til og með 20. september 2026.
Greinagóð ferilskrá, kynningarbréf og leyfisbréf fylgi umsókn.
Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.
Íslenska



















