Eyjafjarðarsveit
Eyjafjarðarsveit
Eyjafjarðarsveit

Deildarstjóri í Krummakot

Leikskólinn Krummakot óskar eftir að ráða deildarstjóra.

Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf í desember eða eftir nánar samkomulagi.

Leikskólinn er í Hrafnagilshverfi 12 km sunnan Akureyrar. Í skólanum eru nú
um 75 börn á fimm deildum.

Einkunnarorð skólans eru „Leikur er okkar nám“
Skólasýn er: Virðing, góðvild og festa þar sem gleði og fagmennska ríkir.


Krummakot flutti í glæsilegt nýtt húsnæði síðastliðið haust. Svæðið í
kringum skólann er sannkölluð náttúruperla, útikennslusvæðið stórt og
gönguleiðir víða. Við leggjum áherslu á Jákvæðan aga, Söguaðferð og
útikennslu. Allir nemendur hafa aðgang að góðri aðstöðu til hreyfingar í
íþróttahúsi og fá einnig tónlistarstund með tónlistarkennurum tvisvar í viku.
Nánari upplýsingar um starfsemi leikskólans má finna á heimasíðu:
https://krummakot.leikskolinn.is

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ábyrgð á stjórnun, skipulagningu, framkvæmd og mati á daglegu starfi deildarinnar.
  • Dagleg verkstjórn á deildinni.
  • Stýra deildarfundum, skipuleggur undirbúningstíma starfsfólks og tryggir góða upplýsingamiðlun innan deildar og til stjórnenda.
  • Tryggir að sérhvert barn á deildinni fái kennslu, leiðsögn og/eða sérkennslu eftir þörfum.
  • Umsjón með móttöku, þjálfun og leiðsögn nýrra starfsmanna á deildinni. 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Umsækjendur þurfa að hafa lokið leikskólakennaranámi eða öðru
    kennaranámi sem veitir leyfisbréf til kennslu eða annarri háskólamenntun
    sem nýtist í starfi.
  • Skipulögð vinnubrögð, sjálfstæði, frumkvæði og góðir samskiptahæfileikar eru mikilvægir eiginleikar.
  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði.
  • Metnaður og áhugi til að þróa gott skólastarf.
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Auglýsing birt4. september 2026
Umsóknarfrestur28. september 2026
Tungumálahæfni
ÍslenskaÍslenska
Nauðsyn
Meðalhæfni
Staðsetning
Skólatröð 9, 605 Akureyri
Starfstegund
Hæfni
PathCreated with Sketch.Hreint sakavottorð
Starfsgreinar
Starfsmerkingar