
AÐSTOÐARKONA ÓSKAST – NPA
AÐSTOÐARKONA ÓSKAST – NPA
Okkur vantar góða, heilsuhrausta, jákvæða og áreiðanlega aðstoðarkonu í NPA-teymið hjá 16 ára tvíburasystrum sem eru á fyrsta ári í framhaldsskóla.
Systurnar eru hressar, skemmtilegar og félagslyndar og hafa gaman af því að spjalla, hlæja og spila. Þær nota rafmagnshjólastóla og þurfa aðstoð við flesta hluti í daglegu lífi.
Vinnutímabil: september - maí (skóladagar) nema um annað sé samið.
Vinnutími: virkir skóladagar frá kl. 7:50–15:50 nema um annað sé samið.
Starfið er mjög fjölbreytt og enginn dagur er því alveg eins.
Helstu verkefni og ábyrgð:
Dæmigerð vinnuvika
- Aðstoða systur á morgnana og koma þeim af stað í daginn
- Keyra þær í skólann á bílnum þeirra – yfirleitt um kl. 8:15
- Sækja þær í skólann um kl. 13
- Vera til taks ef þarf að sækja aðra hvora eða báðar fyrr í skólann
- Aðstoða við matmálstíma eftir skóla
- Keyra í tómstundir, íþróttaæfingar og aðrar athafnir eftir skóla
- Aðstoða þær á íþróttaæfingum
- Fylgja í læknisheimsóknir og sjúkraþjálfun
- Aðstoða við persónulega umönnun og aðrar daglegar athafnir
Akstur er stór hluti af starfinu. Þær eru með stóran bíl sem aðstoðarkona þarf að keyra en hann er mun auðveldari í akstri en hann lítur út fyrir að vera. Það er því mikilvægt að aðstoðarkona sé tilbúin að keyra hann.
Eiginleikar sem við leitum eftir í aðstoðarkonu:
- 20 ára eða eldri
- stundvís
- heilsuhraust
- þolinmóð
- hlýleg, jákvæð og þægileg í samskiptum
- hefur gaman af því að vera í kringum unglinga
- samviskusöm og áreiðanleg
- íslenskumælandi
- með bílpróf
- með hreint sakarvottorð
- reyklaus og veiplaus
Það er mikill kostur að finnast skemmtilegt að spila og spjalla!!
Við búum í Mosfellsbæ og er starfið unnið eftir hugmyndafræði NPA um sjálfstætt líf.
Allar frekari upplýsingar fást hjá Söru Birgisdóttur
[email protected]
Með umsókn skulu ferilskrá og meðmæli fylgja með.
Við hlökkum til að heyra frá þér!
Íslenska










