
Verkís
Hjá Verkís starfa yfir 380 starfsmenn að fjölbreyttum verkefnum á Íslandi og erlendis. Verkís leggur áherslu á að veita vandaða og faglega þjónustu sem er samkeppnisfær við það sem best þekkist í heiminum.

Vertu hluti af stafrænni umbyltingu í hönnun!
Vegna góðrar verkefnastöðu og áframhaldandi þróunar á verklagi leitum við að öflugum einstaklingi í hópinn okkar. Ef þú brennur fyrir tæknibyltingu í mannvirkjagerð, þverfaglegri samvinnu og samræmingu hönnunar þá er þetta starfið fyrir þig.
Við leitum að einstaklingi með reynslu af BIM stjórnun innan verkefna til að vinna að fjölbreyttum verkefnum í byggingum, samgöngum, innviðum, orku og iðnaði.
Verkís er leiðandi ráðgjafarfyrirtæki í BIM á Íslandi. Síðustu ár höfum við innleitt BIM aðgerðaáætlun, nýtt skýjalausnir við samræmingu og árekstragreiningu, þrívíða leiserskönnun, sýndarveruleikafundi og skýjalausnir við hönnunarrýni – og erum að taka fyrstu skrefin í átt að aukinni sjálfvirkni í hönnun.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Uppsetning og aðlögun BIM aðgerðaáætlunar fyrir verkefni
- Eftirfylgni með BIM ferli verkefna
- Leiða samræmingu líkana einstakra fagþátta
- Þátttaka í áframhaldandi BIM þróun hjá Verkís
- Hæfni til að tileinka sér nýjan hugbúnað og verklag
- Sjálfstæði í vinnubrögðum
- Gott vald á íslensku og ensku (þekking á Norðurlandamáli er kostur)
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Reynsla af BIM, samræmingu hönnunar og þverfaglegri vinnu
- Reynsla á sviði verkefnastjórnunar
- Þekking á BIM hugbúnaði frá Autodesk eða Trimble
Advertisement published22. September 2025
Application deadline5. October 2025
Language skills

Required

Required
Location
Ofanleiti 2, 103 Reykjavík
Type of work
Skills
Construction engineerTechnologistEngineer
Professions
Job Tags
Other jobs (6)
Similar jobs (12)

Sérfræðingur sem stýrir verkefnum
Umhverfis- og skipulagssvið

Ert þú sérfræðingur í lögnum? Við leitum að verkefnastjóra í sölu
Málmsteypan

Verkefnastjóri/-stýra framkvæmda
Landsnet hf.

Verk- eða Tæknifræðingur óskast á Framkvæmdasvið
Norconsult Ísland ehf.

Sviðsstjóri umhverfis-, veitu- og framkvæmdasviðs
Húnaþing vestra

Tjónafulltrúi
TM

Sérfræðingur í mannvirkjatjónum
TM

Mannverk leitar að öflugum verkefnastjóra
Mannverk

Verkstjóri í byggingariðnaði
Þakco verk ehf.

Við erum að leita að kraftmiklum verkstjóra!
Atlas Verktakar ehf

Verkstjóri/verkefnastjóri
TILDRA Byggingafélag ehf.

Verkefnastjóri í viðhaldsráðgjöf
EFLA hf