

Sérfræðingur í raforkukerfum
Við leitum eftir rafmagnsverkfræðingi eða rafmagnstæknifræðingi, helst með reynslu af vinnu eða verkefnastjórnun við framleiðslu-, flutnings- og/eða dreifikerfi raforku.
Starfið felur í sér fjölbreytt verkefni á sviði raforkukerfa í virkjunum, tengivirkjum, veitukerfum og iðnaði ásamt eftirliti, prófunum og gangsetningum kerfa á verkstað. Verksviðið er fjölbreytt og náð allt frá frumathugunum og valkostagreiningum að útboðshönnun og yfirferð á hönnun verktaka. Í sumum tilvikum er deilihönnun einnig unnin af hópnum. Vinnan er teymisvinna og krefst mikilla og góðra samskipta við samstarfsfélaga og viðskiptavini. Starfið tilheyrir rafbúnaðarhópi Orkusviðs.
Við höfum áhuga á jákvæðum einstaklingum með góða samskipta- og skipulagshæfni sem sýna metnað, frumkvæði og sjálfstæði í starfi.
- Rafmagnsverkfræðingur eða rafmagnstæknifræðingur
- Reynsla af hönnun rafkerfa er æskileg
- Reynsla af stjórnun verkefna er kostur
- Þekking á helstu forritum sem notuð eru við hönnun rafkerfa
- Reynsla af vinnu við uppsetningu rafkerfa er æskileg
- Gott vald á íslensku og ensku









