
Þakco verk ehf.
Þakco verk er öflugt fyrirtæki sem sérhæfir sig í þakvinnu og er þekkt fyrir traust og góð vinnubrögð.

Verkstjóri í byggingariðnaði
Við óskum eftir metnaðarfullum og skipulögðum verkstjóra til að taka þátt í öflugu teymi okkar. Við sérhæfum okkur bæði í þakverkum og almennri húsasmíði og erum með vaxandi verkefni á höfuðborgarsvæðinu og víðar um land.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón með starfsmönnum á verkstað (skipulag, verkaskipting, eftirfylgni).
- Skoðanir og undirbúningur nýrra verkefna.
- Gerð tilboða og kostnaðaráætlana í samráði við stjórnendur.
- Samskipti við verkkaupa, hönnuði og undirverktaka.
- Eftirlit með gæðum, verklagi og öryggismálum.
- Skýrslugerð og skráning í verkefnaumsjónarkerfi.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Iðnmeistari, sveinspróf eða menntun á sviði byggingariðnaðar er kostur (kostur ef verkstjóraréttindi).
- Reynsla sem verkstjóri eða aðstoðarverkstjóri á byggingarverkefnum.
- Leiðtogahæfileikar og góð samskiptafærni.
- Skipulögð vinnubrögð og hæfni til að stýra mörgum verkefnum samtímis.
- Tölvukunnátta (Excel, DK, Gæðakerfi eða sambærileg kerfi).
- Góð íslenskukunnátta í ræðu og riti, enskukunnátta kostur.
- Ökuréttindi (B, BE kostur).
Fríðindi í starfi
- Öruggt starf hjá vaxandi fyrirtæki í byggingariðnaði.
- Fjölbreytt verkefni og tækifæri til að hafa áhrif á uppbyggingu fyrirtækisins.
- Samstarf við reynslumikið og samhent teymi.
- Samkeppnishæf launakjör samkvæmt samkomulagi.
Umsóknir berast:
Umsóknir skulu fara í gegnum Alfreð, sé það ekki möguleiki, skal senda tölvupóst með ferilskrá og kynningarbréfi á tölvupóstfangið [email protected]
Advertisement published10. September 2025
Application deadline22. October 2025
Language skills

Required

Required
Location
Tangarhöfði 2, 110 Reykjavík
Type of work
Skills
DKMicrosoft ExcelMicrosoft WordQuality tracking systems
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Bifvélavirki / Mechanic
Lotus Car Rental ehf.

Verkstjóri í vöruhúsi á Akureyri
Eimskip

Vertu hluti af stafrænni umbyltingu í hönnun!
Verkís

Staðarstjóri
Eignabyggð ehf.

Verkstjóri í malbikun
Colas Ísland ehf.

Verkefnastjóri/-stýra framkvæmda
Landsnet hf.

Ert þú með ástríðu fyrir háspennu?
Reykjafell

Aðstoðarmaður deildarstjóra á öldrunarlækningadeild L3 Landkoti
Landspítali

Sviðsstjóri umhverfis-, veitu- og framkvæmdasviðs
Húnaþing vestra

Tjónafulltrúi
TM

Sérfræðingur í mannvirkjatjónum
TM

Listasafnið á Akureyri: Verkefnastjóri kynningar- og markaðsmála
Akureyri