
Reykjanesbær
Reykjanesbær er fjölskylduvænn bær sem þroskar og nærir hæfileika allra í gegnum öflugt skóla-, íþrótta-, og menningarstarf. Íbúar sinna fjölbreyttum störfum í vistvænu fjölmenningarsamfélagi sem einkennist af framsækni, eldmóði og virðingu.
Reykjanesbær hefur að markmiði að hafa ávallt á að skipa hæfum og
ánægðum starfsmönnum sem geta sýnt frumkvæði í störfum sínum og veitt bæjarbúum framúrskarandi þjónustu. Það er sameiginlegt verkefni starfsmanna og stjórnenda sveitarfélagsins að veita bæjarbúum sem allra besta þjónustu og sú samvinna byggir á gagnkvæmu trausti og virðingu fyrir ólíkum
sjónarmiðum.

Verkefnastjóri í Tómstundamiðstöð Reykjanesbæjar
Um er að ræða spennandi starf verkefnastjóra í Tómstundamiðstöð Reykjanesbæjar. Tómstundamiðstöð er líflegur og fjörugur vinnustaður. Helstu verkefni Tómstundamiðstöðvar er að halda utan um starf félagsmiðstöðva og vinnuskóla, verkefnið barnvænt sveitarfélag, forvarnarstarf, vettvangsstarf og innleiðingu tómstundastefnu Reykjanesbæjar og fleira.
Gildi Reykjanesbæjar eru virðing, eldmóður og framsækni og mikilvægt er að viðkomandi endurspegli þau gildi í sínum störfum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Verkefnastjóri barnvæns sveitarfélags.
- Vinnur að markaðsmálum fyrir Tómstundamiðstöð Reykjanesbæjar.
- Tengiliður við ungmennaráð Reykjanesbæjar.
- Vinnur að þróun sértæks hópastarfs.
- Vinnur að stefnumótun í málaflokknum.
- Tekur virkan þátt í þjálfun starfsmanna og kynningum á starfinu.
- Ýmis viðburðarstjórnun á vegum Tómstundamiðstöðvar Reykjanesbæjar.
- Önnur tilfallandi verkefni sem yfirmaður felur.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. í tómstunda- og félagsmálafræði eða önnur uppeldismenntun.
- Reynsla af stjórnunarstarfi innan málaflokksins er kostur.
- Reynsla af verkefnastjórnun og stefnumótun er kostur.
- Starfið krefst fræðilegrar þekkingar sem byggir á kenningalegum grunni.
- Þekking á réttindum barna.
- Þekking á ungmennalýðræði.
- Góð þekking á skipulagi, verklagi, stefnu og stjórnsýsluháttum stofnunar.
Starfið krefst færni í að greina, skapa og þróa lausnir og túlka fjölbreyttar upplýsingar eða aðstæður. - Starfsmaður þarf að vera fær um að móta áætlanir til framtíðar (meira en ár).
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum og samvinnu.
- Skipulagshæfni og góð færni í ritun.
Fríðindi í starfi
- Bókasafnskort
- Gjaldfrjáls aðgangur að menningarhúsum
- Gjaldfrjáls aðgangur í sund
- Gjaldfrjáls aðgangur í strætó
Advertisement published17. July 2026
Application deadline31. July 2026
Language skills
IcelandicRequired
Location
Hafnargata 88, 230 Reykjanesbær
Type of work
Professions
Job Tags
Other jobs (2)
Similar jobs (12)

Viðhaldstæknimaður fyrir vélmenni / Robot maintenance technician
NEWREST ICELAND ehf.

Sérfræðingur í viðhaldsstjórnun / CMMS Specialist
atNorth

Project manager and Market Director for Infrastructure
COWI

Skipulagsstjóri í kvikmyndaframleiðslu
STILL VIVID

Verkefnastjóri kjara- og réttindamála
Sjúkraliðafélag Íslands

Verkefnastjóri
Lífeyrissjóður verzlunarmanna

Project Manager - Customer Delivery
DTE

Verkefnastjóri
SÍM,samband ísl myndlistarmanna

Vilt þú leiða Evrópuverkefni um hringrásarhagkerfi?
Umhverfis- og orkustofnun

Senior Product Manager for Weighing & Grading
JBT Marel

Verkefnastjóri vörugagna hjá 66°Norður
66°North

Verkefnastjóri hjá Rannsóknarsetri skapandi greina
Rannsóknasetur skapandi greina