Umhverfis- og orkustofnun
Umhverfis- og orkustofnun
Umhverfis- og orkustofnun

Vilt þú leiða Evrópuverkefni um hringrásarhagkerfi?

Umhverfis- og orkustofnun leitar að sérfræðingi til að stýra metnaðarfullu Evrópuverkefni sem styður innleiðingu hringrásarhagkerfis á Íslandi.

Um er að ræða sex ára LIFE-verkefni með þátttöku 17 samstarfsaðila, þar á meðal stofnana, fyrirtækja og sveitarfélaga. Verkefnið snýr að innleiðingu stefnu stjórnvalda Í átt að hringrásarhagkerfi. Markmið stefnunnar er að koma á öflugu hringrásarhagkerfi á Íslandi, draga úr úrgangi, auka endurvinnslu, minnka sóun og efla sjálfbæra neyslu og framleiðslu.

Í starfinu mun viðkomandi bera ábyrgð á daglegri verkefnastýringu, samhæfingu samstarfsaðila og eftirfylgni með verkefninu. Starfið felur meðal annars í sér að halda utan um verkáætlanir og framvindu, miðla upplýsingum, tryggja skil á gögnum og skýrslum til styrkveitanda og vinna náið með fjölbreyttum samstarfsaðilum innanlands og utan.

Starfið er í teymi hringrásarhagkerfis. Teymið sinnir fjölbreyttum verkefnum á sviði úrgangsforvarna, úrgangsmála, umhverfismerkisins Svansins og sjálfbærrar neyslu og framleiðslu. Teymið vinnur að innleiðingu stefnu stjórnvalda um hringrásarhagkerfi í nánu samstarfi við atvinnulíf, sveitarfélög og aðrar opinberar stofnanir.


Helstu verkefni og ábyrgð
  • Verkefnastýring LIFE-verkefnisins og samstarf um önnur verkefni á sviði hringrásarhagkerfis
  • Samhæfa samstarf ráðuneyta, stofnana, sveitarfélaga, fyrirtækja og annarra samstarfsaðila verkefnisins, þar á meðal að skipuleggja fundi, vinnustofur og samráðsvettvang.
  • Halda utan um aðgerðir, tímaáætlanir, markmið og framvindu verkefnsins
  • Annast skýrslugjöf og samskipti við styrkveitandann
  • Taka þátt í þróun og innleiðingu verkefna sem styðja við hringrásarhagkerfi á Ísland
  • Miðla árangri og framvindu verkefnisins
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, til dæmis í umhverfisfræði eða umhverfisverkfræði
  • Þekking á hringrásarhagkerfi og brennandi áhugi á málaflokknum er kostur.
  • Reynsla af rekstri stórra verkefna, til dæmis Evrópuverkefna, er æskileg
  • Reynsla af því að stýra hagaðilasamstarfi er kostur
  • Mjög góð færni í íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti
  • Góð skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni
  • Góð greiningarhæfni og hæfni til að fylgja verkefnum eftir til árangurs
Advertisement published1. July 2026
Application deadline10. August 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Advanced
Type of work
Work environment
Professions
Job Tags