Rannsóknasetur skapandi greina
Rannsóknasetur skapandi greina
Rannsóknasetur skapandi greina

Verkefnastjóri hjá Rannsóknarsetri skapandi greina

Rannsóknasetur skapandi greina (RSSG) leitar að drífandi og áreiðanlegri manneskju í tímabundið starf verkefnastjóra. Viðkomandi þarf að hafa reynslu af verkefnastjórnun og miðlun, þekkingu á menningu og skapandi greinum og áhuga á rannsóknum á þessu sviði.

Að RSSG standa Háskólinn á Bifröst, Háskólinn á Akureyri, Háskólinn á Hólum, Háskóli Íslands og Listaháskóli Íslands.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Skipulagning og framkvæmd viðburða, þ.m.t. samtals um skapandi greinar
  • Umsjón með miðlun RSSG, þ.m.t. á vefsíðu, samfélagsmiðlum og í fréttabréfi
  • Samskipti við innlenda og erlenda samstarfsaðila og hagaðila
  • Vinna í rannsóknum og greiningum á vegum RSSG
  • Vinna í umsóknum um rannsóknastyrki og annarri fjármögnun verkefna
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af verkefna- eða viðburðastjórnun
  • Reynsla af miðlun og samskiptum
  • Þekking og áhugi á menningu og skapandi greinum
  • Frumkvæði, skipulagshæfni, sjálfstæði og sveigjanleiki
  • Reynsla af rannsóknum á sviði hug- og/eða félagsvísinda er kostur
  • Æskilegt er að viðkomandi hafi gott vald á íslensku í rituðu og töluðu máli
Advertisement published26. June 2026
Application deadline22. July 2026
Language skills
EnglishEnglish
Required
Advanced
IcelandicIcelandic
Required
Basic skills
Type of work
Work environment
Professions
Job Tags