

Verkefnastjóri
Skagi leitar að skipulögðum og lausnamiðuðum verkefnastjóra í fjölbreytt og krefjandi starf sem reynir á samskiptahæfni, frumkvæði og sjálfstæði í starfi. Starfið felur í sér faglega verkefnastýringu verkefna þvert á fyrirtæki í samstæðu Skaga sem meðal annars snúa að innleiðingu stefnu og framtíðarsýnar samstæðunnar.
Viðkomandi mun vinna náið með stjórnendateymi Skaga en einnig þvert á samstæðu.
-
Fagleg stýring verkefna þvert á félög innan samstæðunnar
-
Verkefnastýring fjölbreyttra verkefna í móðurfélaginu
-
Upplýsingagjöf um framgang verkefna til stýrihópa og stjórnenda
-
Greining tækifæra til samvinnu og samræmingar milli félaga innan samstæðunnar
-
Ýmis önnur tilfallandi verkefni
-
Háskólamenntun sem nýtist í starfi
-
Menntun og reynsla á sviði verkefnastjórnunar skilyrði
-
Framúrskarandi hæfni í samskiptum
-
Góð færni í töluðu og rituðu máli á íslensku og ensku
-
Frumkvæði, sjálfstæði og skipulag í starfi
- Framúrskarandi vinnustað með einstaka vinnustaðamenningu
- Frábært mötuneyti
- Fyrirmyndarfyrirtæki með áherslu á jafnrétti
- Nýsköpunarumhverfi því við elskum hugrekki
- Fyrirtæki sem hugsar til framtíðar með því að leggja áherslu á sjálfbærni
- Tækifæri til þess að vaxa og dafna bæði í lífi og starfi













