Specialisterne
Specialisterne
Specialisterne

Framkvæmdastjóri

Stjórn Specialisterne óskar eftir að ráða öflugan framkvæmdastjóra sem mun gegna daglegri stjórnun félagsins. Viðkomandi mun gegna lykilhlutverki í þróun og áframhaldandi uppbyggingu starfseminnar á Íslandi.

Helstu verkefni

  • Ábyrgð á daglegum rekstri félagsins
  • Viðtöl við umsækjendur um þjónustu Specialisterne og forráðamenn þeirra
  • Mat á starfsfærni og þjálfunarúrræðum
  • Heimsóknir til fyrirtækja/stofnana til að afla upplýsinga um störf sem gætu hentað skjólstæðingum Specialisterne
  • Kynning starfseminnar út á við

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Reynsla af stjórnun/verkefnastjórnun
  • Frumkvæði og góður árangur í fyrri störfum
  • Þolinmæði, dugnaður og góð tjáskipti í ræðu og riti
  • Góð samskiptahæfni og hæfni til að virkja aðra til góðra verka
  • Reynsla af starfi með einstaklingum með sérþarfir er kostur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi

Specialisterne ses. er sjálfseignastofnun sem var stofnuð árið 2010 í samvinnu við Einhverfusamtökin. Á Íslandi eru um 4000 einstaklingar á einhverfurófi og sérhæfir Specialisterne sig í þjónustu og atvinnustuðningi við þá. Starfsemi félagsins er byggð á danskri fyrirmynd sem hefur verið aðlöguð að íslenskum aðstæðum. Markmiðið er að meta og þjálfa árlega 14-18 einstaklinga á einhverfurófinu og veita sem flestum þeirra atvinnu, sé þess kostur.

Frá árinu 2012 hafa um 200 einstaklingar verið hjá Specialisterne í mats- og þjálfunarferli og frá þeim tíma hefur félaginu tekist að skapa um 80 atvinnutækifæri fyrir skjólstæðinga sína.

Meginmarkmið Specialisterne:

  • Stuðla að nýjum virðisaukandi atvinnutækifærum fyrir einhverfa.
  • Stuðla að því að efla þá einstaklinga sem sækja þjónustu Specialisterne.
  • Tryggja virkt samstarf við VMST, Reykjavíkurborg og sveitafélög á höfuðborgarsvæðinu, ráðuneyti og aðra hagsmunaaðila.

Umsóknarfrestur er til og með 30. júní 2025. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Farið er með allar umsóknir og fyrirspurnir sem trúnaðarmál.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Torfi Markússon ráðgjafi hjá Intellecta ([email protected]) og Bjarni Torfi Álfþórsson ([email protected]), Bjarni hefur verið framkvæmdastjóri Specialisterne frá því að starfsemin á Íslandi hóf störf 2011.

Advertisement published16. June 2025
Application deadline30. June 2025
Language skills
EnglishEnglish
Required
Advanced
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Síðumúli 32, 108 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.TeachingPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.Project managementPathCreated with Sketch.Patience
Professions
Job Tags