Svalbarðsstrandarhreppur
Svalbarðsstrandarhreppur
Svalbarðsstrandarhreppur

Leikskólinn Álfaborg, Svalbarðseyri, óskar eftir sérkennara í 50% stöðu

Leikskólinn Álfaborg leitar að sérkennara til starfa í 50% stöðu með möguleika á 50% stöðu til viðbótar inn á deild. Ráðið verður í starfið frá og með 15. ágúst.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Annast sér- og stuðningskennslu.

  • Annast mat og eftirfylgni vegna stuðningsþarfa auk umsjón gagna.

  • Ráðgjöf til starfsfólk og foreldra og þátttaka í teymisvinnu vegna nemenda.

  • Samskipti við sérfræðinga á Fræðslu- og lýðheilsusviði.

  • Stuðlar að velferð og árangri nemenda í samstarfi við foreldra og fagaðila 

  • Vinnur samkvæmt stefnu skólans. 

  • Vinnur að þróun skólastarfs í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk.

  • Önnur verkefni skv. starfslýsingu ásamt verkefnum sem skólastjóri felur starfsmanni.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf fylgi umsókn)

  • Æskilegt að viðkomandi hafi reynslu og/eða menntun í sérkennslu. 

  • Þekking og reynsla af greiningarverkfærum á borð við EFI2, TRAS, MIO og Hljóm-2 er æskileg. 

  • Áhugi á að starfa með börnum.   

  • Lipurð í samskiptum, sveigjanleiki, samstarfshæfni og jákvæðni til að starfa í metnaðarfullu umhverfi

  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum

  • Stundvísi og samviskusemi

  • Góð íslenskukunnátta í rituðu og töluðu máli. 

Fríðindi í starfi

Fæði

Advertisement published16. June 2025
Application deadline2. July 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Valsárskóli 152911, 601 Akureyri
Type of work
Professions
Job Tags