Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Rekstrarstjóri íþrótta- og tómstundamála

Hafnarfjarðarbær leitar að drífandi einstaklingi til að gegna starfi rekstrarstjóra íþrótta- tómstundamála. Starfið felur í sér fjölbreytt verkefni sem tengjast rekstri Vinnuskóla Hafnarfjarðar, íþróttamála, félagsmiðstöðva og frístundaheimila. Rekstrarstjóri vinnur náið með íþrótta- og tómstundafulltrúa, fjölbreyttum hópi starfsfólks og samstarfsaðilum á sviði íþrótta og tómstunda, bæði innan bæjarins og í nærsamfélaginu, þar með talið íþróttafélög, stofnanir og félagasamtök.

Starfið hentar þeim sem hafa reynslu af rekstri, starfsmannamálum, viðburðarstjórnun og þeim sem hafa áhuga á að stuðla að uppbyggingu öflugs tómstundastarfs í þágu barna og ungmenna.

Ef þú hefur áhuga á að sinna fjölbreyttu starfi og hafa jákvæð áhrif á samfélagið þá er þetta tækifærið fyrir þig.

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Heldur utan um rekstrar- og fjárhagsáætlanir fyrir félagsmiðstöðvar, Vinnuskóla og íþróttamannvirki í samvinnu við íþrótta - og tómstundafulltrúa
  • Kemur að samninga- og áætlanagerð fyrir íþrótta og tómstundafélög og hefur eftirfylgni með rekstrar- og þjónustusamningum
  • Ber ábyrgð á daglegum rekstri Vinnuskólans frá mars til september/október
  • Þátttaka í vinnuhópum, ráðum og teymisvinnu
  • Sinnir fjölbreyttu samstarfi við aðila innan og utan vinnustaðarins
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu

Menntunnar- og hæfniskröfur:

  • B.Sc. gráða í viðskiptafræði/hagfræði eða sambærilegt
  • Reynsla af rekstri og starfsmannamálum
  • Reynsla af íþrótta- og tómstundamálum er æskileg
  • Góð hæfni í samskiptum og teymisvinnu
  • Frumkvæði, sjálfstæði og nákvæmni í vinnubrögðum
  • Góð tölvukunnátta
  • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku, enskukunnátta

Umsóknarfrestur er til og með 27. júní 2025

Greinargóð ferilskrá fylgi umsókn. Gerð er krafa um að viðkomandi sé með hreint sakavottorð.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við Kjarafélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga.

Nánari upplýsingar gefur yfirmaður viðkomandi starfs, Geir Bjarnason íþrótta- og tómstundafulltrúi í gegnum netfangið [email protected] og í síma 6645754.

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Advertisement published16. June 2025
Application deadline27. June 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Intermediate
Location
Strandgata 6, 220 Hafnarfjörður
Type of work
Professions
Job Tags
Other jobs (35)
Hafnarfjarðarbær
Starfsmaður fráveitu - Umhverfis- og skipulagssvið
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Tómstundaleiðbeinandi í félagsmiðstöðina Vitann – Lækjarskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Deildarstjóri stoðþjónustu - Lækjarskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Kennarar í Veröld - Víðistaðaskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Deildarstjóri - Leikskólinn Víðivellir
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Þroskaþjálfi – Lækjarskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Skrifstofustjóri - Lækjarskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Sumarstarf/tímabundið starf í mannauðs- og launadeild
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Safnstjóri skólasafns - Lækjarskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Skóla- og frístundaliðar í Krakkaberg - Setbergsskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Heimilisfræðikennari - Víðistaðaskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Deildarstjóri yngsta stigs – Setbergsskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Kennari á unglingastigi - Öldutúnsskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Náttúrufræði- og stærðfræðikennari á unglingastigi - Skarðshlíðarskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Deildarstjóri á yngsta stigi - Skarðshlíðarskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Sérfræðingur í mannauðs- og launadeild
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Kennari á miðstigi - Víðistaðaskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Umsjónarkennarar á yngsta stig - Víðistaðaskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Pólskumælandi ráðgjafi frístunda- og menningarmiðlunar (Brúarsmiður) - Mennta- og lýðheilsusvið
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Spænskumælandi ráðgjafi frístunda- og menningarmiðlunar (Brúarsmiður) - Mennta- og lýðheilsusvið
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Deildarstjóri tómstundamiðstöðvar - Víðistaðaskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Deildarstjóri Veraldar - Víðistaðaskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Kennarar - Leikskólinn Stekkjarás
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Verkefnastjóri í einhverfudeild - Hraunvallaskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Skóla- og frístundaliði - Öldutúnsskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Atferlisfræðingur - Skarðshlíðarskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Skóla- og frístundaliði - Engidalsskóli /frístundaheimilið Álfakot
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Þroskaþjálfi - Skarðshlíðarskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Verkefnastjóri í félagsmiðstöð - Skarðshlíðarskóli – Skarðið
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Tómstundaleiðbeinandi - Verið - Hvaleyrarskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Skóla- og frístundaliði - Lækjarskóli 
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Umsjónarkennari í einhverfudeild Hraunvallaskóla
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Sérfræðingur á athvarfið Læk
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Kennari - Leikskólinn Bjarkalundur
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Skólastjóri - Hamranesskóli
Hafnarfjarðarbær