Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær

Deildarstjóri Veraldar - Víðistaðaskóli

Víðistaðaskóli auglýsir stöðu deildarstjóra í Veröld sem er nýtt skólaúrræði vegna barna sem eru umsækjendur um alþjóðlega vernd. Veröld byggir á góðu starfi sem þróað hefur verið undanfarin ár sem kennslu- og stuðningsúrræði fyrir börn með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn.

Við leitum að framsýnni, skipulagðri og áhugasamri manneskju sem er tilbúin að leggja í þá vegferð að byggja upp og skapa faglegt og gott skólaumhverfi fyrir nemendur með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn.

Nemendur Víðistaðaskóla eru ríflega 500 í 1.-10.bekk. Starfsmenn skólans eru liðlega 100 og ríkir góður starfsandi og samheldni innan hópsins. Við störfum eftir leiðarljósunum ábyrgð- virðing- vinátta. Við leggjum áherslu á líðan nemenda, fjölbreytta kennsluhætti, nemendalýðræði og að hver og einn fái tækifæri til að vera eins og hann er.

Um 100% starf er að ræða, sem skiptist í stjórnun og kennslu. Ráðið er í stöðuna frá 1.ágúst.

Helstu verkefni:

  • Stýrir daglegu starfi og verkefnum innan deildar
  • Annast eftirfylgd einstaklings- og kennsluáætlana og aðfanga til kennslu, stýrir faglegri vinnu og aðstoðar starfsfólk deildar við dagleg verkefni
  • Stýrir samráðsfundum deildar og samstarfi kennara og annarra starfsmanna
  • Ber ábyrgð á skýrslum um nemendur deildar, boðar og stýrir móttöku- og skilafundum vegna nemenda deildarinnar
  • Annast upplýsingamiðlun deildar, s.s. fréttabréf og er tengiliður við foreldra
  • Er tengiliður við stofnanir utan skólans vegna nemendamála
  • Ber ábyrgð á gerð og framkvæmd tilfærsluáætlana vegna nemenda deildar sem fá dvalarleyfi og fara í almennan grunnskóla
  • Önnur verkefni samkvæmt starfslýsingu

Menntunar og hæfniskröfur:

  • Leyfisbréf til kennslu í grunnskóla
  • Framhaldsmenntun á sviði menntunar, fjöltyngis og fjölmenningar eða sambærileg menntun er æskileg
  • Kennslureynsla í grunnskóla
  • Reynsla af stjórnun af fjölbreyttu tagi, ekki síst í grunnskóla
  • Reynsla af kennslu nemenda með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn
  • Þekking á áfallamiðaðri nálgun í skólastarfi er kostur
  • Framúrskarandi hæfni í samskiptum og samstarfshæfni
  • Reynsla og áhugi af starfi með börnum og ungmennum

Umsóknarfrestur er til og með 19. júní 2025

Skilyrði við ráðningu er að viðkomandi hafi hreint sakavottorð.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.

Greinargóð ferilskrá fylgi umsókn.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Dagný Kristinsdóttir, skólastjóri, [email protected] sími 6645890

Vakin er athygli á stefnu Hafnarfjarðarbæjar að jafna hlutfall kynjanna í störfum hjá bænum og að vinnustaðir bæjarins endurspegli fjölbreytileika samfélagsins.

Advertisement published6. June 2025
Application deadline19. June 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Very good
Location
Hrauntunga 7, 220 Hafnarfjörður
Type of work
Professions
Job Tags
Other jobs (27)
Hafnarfjarðarbær
Pólskumælandi ráðgjafi frístunda- og menningarmiðlunar (Brúarsmiður) - Mennta- og lýðheilsusvið
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Spænskumælandi ráðgjafi frístunda- og menningarmiðlunar (Brúarsmiður) - Mennta- og lýðheilsusvið
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Deildarstjóri tómstundamiðstöðvar - Víðistaðaskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Kennarar - Leikskólinn Stekkjarás
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Verkefnastjóri í einhverfudeild - Hraunvallaskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Skóla- og frístundaliði - Öldutúnsskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Atferlisfræðingur - Skarðshlíðarskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Skóla- og frístundaliði - Engidalsskóli /frístundaheimilið Álfakot
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Þroskaþjálfi - Skarðshlíðarskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Verkefnastjóri í félagsmiðstöð - Skarðshlíðarskóli – Skarðið
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Tómstundaleiðbeinandi - Verið - Hvaleyrarskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Skóla- og frístundaliði - Lækjarskóli 
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Umsjónarkennari í einhverfudeild Hraunvallaskóla
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Skóla- og frístundaliði í frístund einhverfudeildar Hraunvallaskóla
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Skóla- og frístundaliði - einhverfudeild Hraunvallaskóla
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Sérfræðingur á athvarfið Læk
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Kennari - Leikskólinn Bjarkalundur
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Kennari - Leikskólinn Álfaberg
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Forvarnarfulltrúi - Mennta- og lýðheilsusvið
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Deildarstjóri - Hraunvallaleikskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Skólastjóri - Hamranesskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Deildarstjóri - Leikskólinn Víðivellir
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Starfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk - Steinahlíð
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Umsjónarkennari á yngsta stigi - Öldutúnsskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Náms- og starfsráðgjafi - Skarðshlíðarskóli
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Hafnsögumaður/skipstjóri
Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær
Flokkstjórar og aðstoðarflokkstjórar Vinnuskóla – sumarstörf
Hafnarfjarðarbær