Akureyri
Akureyri
Akureyri

Deildarstjórar forvarna- og frístundamála grunnskóla

Fræðslu- og lýðheilsusvið Akureyrarbæjar óskar eftir að ráða í stöður deildarstjóra forvarna- og frístundamála grunnskóla. Um er að ræða ótímabundin störf í 80-100% starfshlutfalli. Unnið er í dagvinnu með vinnuskyldu utan dagvinnumarka. Kostur er að viðkomandi geti hafið störf 1. september næstkomandi eða samkvæmt samkomulagi.

Deildarstjóri leiðir þróun forvarnar-, frístunda- og félagsmiðstöðvastarfs í skólanum, veitir því faglega forystu, skipuleggur daglegt frístunda- og félagsmiðstöðvastarf og stuðlar að framförum, árangri, velferð og vellíðan barna og unglinga. Næsti yfirmaður er skólastjóri.

Deildarstjóri hefur yfirumsjón með málaflokknum innan skóla og starfar í teymi frístundafulltrúa og félagsmiðstöðvafulltrúa við framgang og framkvæmd verkefna þar innan.

Auglýsingu fyrir hvern skóla má finna hér;

Oddeyrarskóli: https://jobs.50skills.com/akureyri/is/36240

Glerárskóli: https://jobs.50skills.com/akureyri/is/36239

Giljaskóli: https://jobs.50skills.com/akureyri/is/36238

Brekkuskóli: https://jobs.50skills.com/akureyri/is/36237

Síðuskóli: https://jobs.50skills.com/akureyri/is/36236

Naustaskóli: https://jobs.50skills.com/akureyri/is/36235

Lundarskóli: https://jobs.50skills.com/akureyri/is/36233

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Ber ábyrgð á starfsemi frístundar fyrir 1. - 4. bekk og skipuleggur störf starfsfólks frístundar í samstarfi við frístundafulltrúa.
  • Ber ábyrgð á starfsemi félagsmiðstöðva skólans, annars vegar fyrir 5. - 7. bekk og hins vegar fyrir 8. - 10. bekk og skipuleggur starfið í samstarfi við félagsmiðstöðvafulltrúa.
  • Hefur yfirumsjón með framkvæmd forvarnarmála innan stofnunar.
  • Mótar og kemur til framkvæmdar starfsáætlun frístundar og félagsmiðstöðva.
  • Sinnir daglegu starfi í frístund og félagsmiðstöð eftir því sem við á.
  • Vinnur með börnum og unglingum að félagsfærni, jákvæðum samskiptum og sjálfstyrkingu, hvort sem er með einstaklingum eða hópum í samstarfi við frístunda- og félagsmiðstöðvafulltrúa.
  • Veitir forvarnar-, frístunda- og félagsmiðstöðvastarfi í skólanum eftirfylgni og hefur forystu um þróun og umbætur á því sviði.
  • Starfar með stoðteymi skóla að inngripum sem styðja við félags- og samskiptafærni með einstaklingum og hópum.
  • Vinnur með fræðsluyfirvöldum í sveitarfélaginu, verkefnastjóra málefna barna- og unglinga og öðrum deildarstjórum málaflokksins um stefnumótun og ákvarðanatöku.
  • Heldur utan um og stuðlar að samstarfi og teymisvinnu milli frístundar og félagsmiðstöðva innan síns skóla og milli skóla.
  • ​Skipuleggur og stýrir teymisfundum í frístund og félagsmiðstöð.
  • Tekur þátt í undirbúningi á fjárhagsáætlun skólans m.t.t. málaflokksins.
  • Gætir að því að innkaup og mönnun málaflokksins falli innan fjárhagsramma.
  • Tekur þátt í ráðningum starfsfólks frístundar og félagsmiðstöðvar
  • Tryggir samstarf um verkefni og að veitt þjónusta sé í samræmi við markmið.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun á sviði tómstunda- og félagsmálafræði eða sambærilegt (BA/BS/B.Ed).
  • Viðbótarnám/diplóma á háskólastigi kostur.
  • Nýleg og farsæl reynsla af vinnu með ungu fólki.
  • Nýleg og farsæl reynsla af starfi við forvarnir og fræðslu.
  • Nýleg og farsæl reynsla af frístunda- og félagsmiðstöðvastarfi.
  • Þekking á þróun, straumum og stefnum í forvarnarmálum, frístunda- og félagsmiðstöðvastarfi.
  • Þekking á lögum, reglugerðum og öðrum opinberum fyrirmælum sem um starfsemina gildir og hæfni til að leiða forvarna- og frístundastarf í samræmi við markmið og ákvæði laga.
  • Reynsla af teymisstjórnun er æskileg.
  • Hæfni til að leiða umbótamiðað forvarnastarf.
  • Þekking og hæfni til að standa vörð um og stuðla að farsæld barna og unglinga.
  • Skipulögð og fagleg vinnubrögð.
  • Framtakssemi, frumkvæði og samskiptafærni.
  • Vilji til þróunar og nýsköpunar.
  • Metnaður til árangurs.
  • Mjög góð tölvukunnátta.
  • Góð íslenskukunnátta og færni til að tjá sig í ræðu og riti.Góð enskukunnátta.
  • Gerð er krafa um vammleysi, s.s. að vera með gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu.
Advertisement published6. June 2025
Application deadline17. June 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Very good
EnglishEnglish
Required
Very good
Location
Glerárgata 26, 600 Akureyri
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.AmbitionPathCreated with Sketch.PlanningPathCreated with Sketch.Team work
Professions
Job Tags