

Uppsetning á nemendasöngleik Álfhólsskóla
Í Álfhólsskóla eru um 600 nemendur í 1.-10. bekk og um 130 starfsmenn. Skólinn byggir á langri sögu um framsækið og árangursríkt skólastarf. Starfið einkennist af fjölbreyttum kennsluháttum, áherslu á læsi, teymiskennslu og leiðsagnarnám. Allir nemendur skólans eru með spjaldtölvur. Álfhólsskóli er fjölmenningarlegur skóli sem leggur áherslu á inngildingu allra nemenda. Í skólanum eru starfrækt námsver fyrir nemendur með einhverfu. Álfhólsskóli er í innleiðingarferli sem réttindaskóli Unicef. Skólinn hefur mótað eigin skólamenningaráætlun ,,Öll sem eitt". Skólinn er jafnframt Grænfánaskóli og Heilsueflandi skóli.
Einkunnarorð skólans eru : menntun - sjálfstæði - ánægja.
Álfhólsskóli óskar eftir leiðbeinanda/kennara til þess að setja upp og leikstýra söngleik með nemendum í söngleikjavali á unglingastigi. Sýningin er áætluð að vori 2026.
- Áhugi á skólastarfi, kennslu og vinnu með börnum.
- Jákvætt viðmót og góð samstarfs- og samskiptahæfni.
- Góð íslenskukunnnátta.
- Leikni í samstarfi.
- Frumkvæði, sjálfstæði í vinnubrögðum og skipulagshæfni.
- Reynsla af uppsetningu söngleikja æskileg.
- Háskólapróf byggð á uppeldisfræðum, kennslufræðum og/eða í leiklist æskileg.
- Reynsla af vinnu með börnum æskileg.
- Frítt í sund í sundlaugum Kópavogs.












