
Þroskaþjálfi eða einstaklingur með sambærilega menntun
Við leitum að einstaklingi sem brennur fyrir því að efla og styðja nemendur með sérþarfir. Starfið felur í sér einstaklingsmiðaða þjálfun, stuðning og teymisvinnu með starfsfólki skólans og foreldrum. Þú verður mikilvægur þátttakandi í því að tryggja velferð og framgang hvers nemanda. Um fullt starf er að ræða.
Um Víkurskóla
Í Víkurskóla er leitast við að búa nemendum hvetjandi námsumhverfi. Áhersla er lögð á samstarf kennara og annarra starfsmanna um fjölbreytta kennsluhætti. Víkurskóli er heilsueflandi skóli og vinnur í anda uppbyggingarstefnunnar, Uppeldis til ábyrgðar. Víkurskóli er jafnframt einn af jarðvangsskólum Kötlu Geopark. Lögð er áhersla á samvinnu og sameiginlega ábyrgð starfsmanna á verkefnum skólans. Skólinn hefur um árabil tekið þátt í fjölþjóðlegu samstarfi í gegnum Erasmus+.
Helstu verkefni og ábyrgð:
- Utanumhald með þjálfun, skráningu og endurmati nemenda
- Vinna við einstaklingsnámskrár og námsmat
- Samstarf við fagaðila innan sem utan skólans og foreldra/forráðamenn
- Önnur tilfallandi verkefni
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Menntun sem nýtist í starfi, s.s. þroskaþjálfa- eða atferlisþjálfunarmenntun, kennaramenntun eða önnur sambærileg menntun
- Reynsla af sambærilegu starfi er kostur
- Áhugi á að starfa með börnum og ungmennum
- Framúrskarandi samskipta- og samstarfshæfni
- Skipulagshæfileikar og sveigjanleiki í starfi
- Íslenskukunnátta á stigi C1 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
Við bjóðum upp á:
- Aðstoð við flutning og öflun húsnæðis fyrir fagfólk
- Mjög góðan starfsanda og liðsheild
- Fjölbreytt og öflugt skólastarf
Umsóknarfrestur er til og með 1. júní nk. Staðan eru laus frá 1. ágúst 2025. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Launakjör eru samkvæmt samningi LN og viðkomandi stéttarfélags. Umsóknir gilda í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Öllum umsóknum verður svarað að ráðningu lokinni.
Nánari upplýsingar veitir Elín Einarsdóttir skólastjóri í síma 4871242 / 7761320, jafnframt heimasíða skólans www.vikurskoli.is












