
Orkusalan
Hlutverk Orkusölunnar er að framleiða, kaupa og selja rafmagn til heimila, fyrirtækja og stofnana um allt land. Orkusalan er eina fyrirtækið á raforkumarkaði sem hefur kolefnisjafnað bæði rekstur og vinnslu raforku.

Sölu- og þjónusturáðgjafi hleðslulausna
Við hjá Orkusölunni leitum að öflugum stuðbolta til að ganga til liðs við hleðsluteymið okkar. Hleðsluþjónusta Orkusölunnar er í miklum vexti og framundan eru spennandi verkefni tengd almennings- og heimahleðslu ásamt hleðslulausnum fyrir fyrirtæki og fjölbýli. Starfið felur í sér mikil samskipti við viðskiptavini, samstarfsaðila og samstarfsfólk innan Orkusölunnar.
Við leitum að einstaklingi sem nýtur þess að vera í samskiptum við fólk og leggur metnað í að veita góða þjónustu. Viðkomandi er skipulögð manneskja, drífandi og á auðvelt með að halda utan um mörg verkefni í einu og fylgja málum eftir frá fyrstu fyrirspurn til virkrar hleðslulausnar.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Þjónusta, sala og ráðgjöf til viðskiptavina um hleðslulausnir
- Umsjón með fyrirspurnum, tilboðum og samningagerð
- Samskipti við fyrirtæki, húsfélög og aðra viðskiptavini
- Umsjón og eftirfylgni með samningum og viðskiptasamböndum
- Eftirfylgni með verkefnum og ábyrgð á góðri þjónustu
- Þátttaka í áframhaldandi þróun ferla og þjónustu hleðsluteymis
Menntunar- og hæfniskröfur
- Háskólamenntun er kostur en ekki skilyrði
- Góðir söluhæfileikar og rík þjónustulund
- Framúrskarandi samskipta- og skipulagshæfileikar
- Geta til að vinna undir álagi og bera ábyrgð
- Reynsla af sölu og þjónustu er kostur
- Áhugi á rafbílum, orkuskiptum og tækni er mikill kostur
- Góð íslensku- og enskukunnátta
- Góð tölvukunnátta
Advertisement published3. October 2026
Application deadline16. October 2026
Language skills
EnglishRequired
IcelandicRequired
Type of work
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Söluráðgjafi Enterprise-lausna með áherslu á netlausnir
Advania

Söluráðgjafi Enterprise-lausna
Advania

Origo leitar að reynsluboltum í Business Central
Origo ehf.

Egilsstaðir: Deildarstjóri málningardeildar
Húsasmiðjan

Þjónusturáðgjafi Kia, Honda og Xpeng
Bílaumboðið Askja

Starfsmaður í Gæludýr.is Smáratorgi - Fullt starf
Waterfront ehf

Tæknifólk í Framlínuþjónustu
OK

Sérfræðingur í hleðslulausnum
HS Orka

Viðskiptastjóri hjá Vistor
Vistor

Ráðgjafi í verslun - Akureyri
Bílanaust

Sölufulltrúi – tækifæri til að verða sölustjóri
Gatula ehf.

Vaktstjóri
Enterprise Rent-A-Car á Íslandi