

Sérfræðingur í stafrænni markaðssetningu
Datera leitar að metnaðarfullum einstaklingi til að bætast í öflugan hóp sérfræðinga í stafrænni markaðssetningu. Viðkomandi mun fá tækifæri til að vinna með mörgum af fremstu fyrirtækjum landsins og sinna krefjandi verkefnum í skapandi og lifandi umhverfi.
Við leitum að einstaklingi sem hefur reynslu af stafrænni markaðssetningu og er tilbúinn að tileinka sér þekkingu á árangursríkum stafrænum auglýsingaherferðum.
- Umsjón og stýring á herferðum á helstu stafrænu miðlum (Meta, Google, TikTok, Reddit o.fl.).
- Stefnumótandi vinna við efnis- og upplýsingabestun (SEO og GEO).
- Greining gagna, skýrslugerð og miðlun upplýsinga til viðskiptavina á skýran hátt.
- Dagleg samskipti og ráðgjöf sem hjálpar viðskiptavinum okkar að vaxa.
- Áætlanagerð og þátttaka í stefnumótun.
- Menntun og/eða reynsla sem nýtist í starfi
- Haldbær reynsla af stafrænum auglýsingakerfum (sérstaklega Meta og Google).
- Góður skilningur á því hvernig stafrænar herferðir tengjast raunverulegum viðskiptamarkmiðum.
- Sjálfstæð og fagleg vinnubrögð þar sem frumkvæði ræður ríkjum.
- Geta til að halda utan um stærri verkefni og byggja upp traust hjá viðskiptavinum.
- Gott vald á íslensku og ensku, í ræðu og riti.
Datera er þekkingar- og ráðgjafafyrirtæki á sviði markaðssetningar og birtinga. Við sérhæfum okkur í gagnadrifnum og sjálfvirkum auglýsingaherferðum, efnis- og upplýsingabestun og sérhæfðri birtingaráðgjöf. Við hámörkum árangur og nýtingu markaðsfjár viðskiptavina okkar með þekkingu, innsæi og nýjustu tæknilausnum á sviði stafrænnar markaðssetningar.
- Lifandi og skemmtilegt starfsumhverfi í miðbæ Reykjavíkur
- Greiddur hádegismatur þrjá daga vikunnar
- Ávextir, snarl og frískandi drykkir alla daga
- Virkt fræðslustarf og heilsustefna
- Sveigjanlegt og fjölskylduvænt vinnuumhverfi
- Öflugt félagslíf
Umsóknarfrestur er til og með 1. september 2026. Unnið verður úr umsóknum jafnóðum og boðað til viðtala á meðan á umsóknarferlinu stendur.
Icelandic
English









