Skrifstofa Alþingis
Skrifstofa Alþingis
Skrifstofa Alþingis

Stafrænn þróunarstjóri

Markmið skrifstofu Alþingis er að efla stafræna getu sína, bæta þjónustu og einfalda ferla. Við leitum að starfrænum þróunarstjóra til að leiða þá vegferð.

Um er að ræða nýtt lykilhlutverk sem heyrir beint undir skrifstofustjóra og ber ábyrgð á stefnumótun og samhæfingu stafrænna umbóta skrifstofunnar. Leitað er að öflugum aðila með farsæla reynslu af sambærilegum verkefnum og færni til að sameina fólk um skýra sýn og forgangsröðun verkefna. Viðkomandi er ætlað að leiða framkvæmd stafrænnar vegferðar og stuðla að þróun lausna sem styðja við starfsemina í heild.

Stafrænn þróunarstjóri þarf að tryggja að ákvarðanir um stafræna þróun byggi á skýrum markmiðum og raunhæfum forsendum. Auk faglegrar þekkingar þarf viðkomandi að búa yfir framúrskarandi samstarfs- og samskiptafærni og getu til að skapa samstöðu um markmið, jafnvel án formlegs boðvalds.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Leiða stefnumótun um stafræna þróun og innleiðingu hennar
  • Styrkja góða verkefnastýringu stafrænna verkefna og forgangsraða umbótaverkefnum þvert á starfsemina
  • Tryggja að stafræn þróun og innleiðing lausna taki mið af þörfum Alþingis og kröfum um upplýsingaöryggi, persónuvernd og góða stjórnsýsluhætti
  • Stuðla að uppbyggingu stafrænnar hæfni innan skrifstofunnar
  • Meta og leiða innleiðingu nýrrar tækni með ábyrgum hætti, þ.m.t. gervigreindar
  • Veita framkvæmdastjórn faglega ráðgjöf um stefnumótandi ákvarðanir stafrænna umbóta
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Farsæl reynsla af verkefnastýringu umbótaverkefna með mælanlegum árangri
  • Víðtæk þekking og reynsla af stafrænni þróun og upplýsingatækni
  • Leiðtogahæfni og farsæl reynsla af því að virkja fólk, byggja upp samstarf og skapa meðbyr með umbótastarfi
  • Reynsla af stefnumótandi ákvarðanatöku sem byggir á gögnum og greiningu
  • Framúrskarandi samskiptafærni og hæfni til að miðla flóknum viðfangsefnum með árangursríkum hætti
  • Frumkvæði, drifkraftur og framsýni
  • Þekking á stjórnsýslu og starfsumhverfi opinberra stofnana er kostur
Advertisement published14. August 2026
Application deadline31. August 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
Location
Kirkjustræti 10, 101 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.DrivePathCreated with Sketch.Human relations
Professions
Job Tags