

Markaðssérfræðingur
Markaðssérfræðingur óskast fyrir fjögur einstök hótel
Leitað er að drífandi og skapandi einstaklingi til að sinna markaðsstarfi fjögurra einstakra hótela: ION Adventure Hotel, ION City Hotel, Hótel Von og Hótel Búðir. Starfið býður upp á tækifæri til að móta ásýnd sterkra vörumerkja og miðla sögum af framúrskarandi íslenskri gestrisni.
Starfið felur í sér ábyrgð á stafrænni markaðssetningu, samfélagsmiðlum, efnisgerð ásamt skipulagningu og framkvæmd markaðsherferða á ólíkum miðlum. Starfsmaður mun greina árangur og nýta gögn til að auka sýnileika, bókanir og ánægju gesta. Einnig er gert ráð fyrir utanumhaldi um viðburði sem skipulagðir eru af markaðsdeild. Unnið verður náið með sölu- og hótelstjórum að sameiginlegum markmiðum, árstíðabundnum verkefnum og kynningu á þjónustu, viðburðum og sértilboðum.
Menntunar- og hæfniskröfur
Háskólamenntun í markaðsfræði, samskiptum eða sambærileg menntun er æskileg, en sambærileg starfsreynsla kemur einnig til greina. Gerð er krafa um haldbæra reynslu af skipulagningu og framkvæmd stafræns markaðsstarfs og stjórnun hefðbundinna markaðsherferða.
Viðkomandi þarf að búa yfir hæfni í gagnadrifinni greiningu og geta nýtt gögn við ákvarðanatöku. Mikilvægt er að geta unnið bæði á stefnumótandi hátt og sjálfstætt við daglega framkvæmd verkefna, ásamt því að eiga auðvelt með samstarf. Góð íslensku- og enskukunnátta, bæði í ræðu og riti, er nauðsynleg. Reynsla af hönnunartólum á borð við Canva, Figma eða Adobe er kostur, sem og reynsla úr ferðaþjónustu. Áhugi á ferðalögum, menningu, hönnun og íslenskri náttúru er jafnframt mikilvægur.
Í boði er fjölbreytt starf í metnaðarfullu umhverfi þar sem frumkvæði og sköpunarkraftur fá að njóta sín. Starfsmaður verður hluti af öflugu teymi og fær svigrúm til að þróa markaðsstarfið áfram.
Áhugasamir eru hvattir til að senda inn umsókn og ferilskrá í gegnum Alfreð.
Starfið felur í sér ábyrgð á stafrænni markaðssetningu, samfélagsmiðlum, efnisgerð ásamt skipulagningu og framkvæmd markaðsherferða á ólíkum miðlum. Starfsmaður mun greina árangur og nýta gögn til að auka sýnileika, bókanir og ánægju gesta. Öll ábyrgð vegna viðburða og samskiptum við listamenn.
Háskólamenntun í markaðsfræði æskileg
Icelandic
English








