Garðabær
Garðabær
Garðabær

Leikskólinn Bæjarból auglýsir eftir aðstoðarleikskólastjóra

Heilsuleikskólinn Bæjarból auglýsir eftir aðstoðarleikskólastjóra í afleysingu í eitt ár frá og með 17. ágúst 2025. Staðan er 100% en verksvið aðstoðarleikskólastjóra skiptist í 40% stjórnun og 60% vinnu með börnunum.

Leikskólinn er staðsettur í fallegu grónu hverfi, hann er fjögurra deilda og þar er rými fyrir 86 börn. Bæjarból er heilsueflandileikskóli með áherslu á hreyfingu, sköpun og útiveru.

Einkunnarorð skólans eru : Leikgleði - Agi - Lífsleikni.

Heimasíða skólans er www.baejarbol.is.

Leitað er að jákvæðum einstakling sem er framsýnn í skólamálum, sýnir frumkvæði og býr yfir hæfni í samskiptum.

Starfsfólk í skólum Garðabæjar hefur möguleika á að sækja um styrki í Þróunarsjóði leik- og grunnskóla Garðabæjar og er þeim ætlað að stuðla að nýbreytni og framþróun í starfi. Einnig er til staðar sérverkefnasjóður sem styður enn frekar við skólastarfið.

Starf aðstoðarleikskólastjóra er frábært tækifæri fyrir áhugasama, þar gefst einstakt tækifæri til að taka þátt í þróun leikskólastarfs og hafa áhrif í sterku stjórnendateymi. Á komandi skólaári verður haldið áfram að innleiða Barnasáttmála sameinuðuþjóðanna og auka lýðræði barna ásamt því að endurskoða skólanámskrá leikskólans.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Er aðstoðarmaður leikskólastjóra og ber ásamt honum ábyrgð á rekstri leikskólans
  • Er staðgengill í fjarveru leikskólastjóra og starfar þá samkvæmt starfslýsingu hans
  • Vinnur ásamt leikskólastjóra að daglegri stjórnun leikskólans og skipulagningu uppeldisstarfsins
  • Sinnir þeim verkefnum sem yfirmaður felur honum
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Leyfisbréf til kennslu (leyfisbréf fylgi umsókn)
  • Að lágmarki 60 námseiningar í uppeldis- og kennslufræðigreinum
  • Sérhæfð hæfni sem snýr að skólaþróun, stjórnun, rekstri og stjórnsýslu
  • Reynsla af starfi á leikskólastigi
  • Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar og/eða reynsla að stjórnun æskileg
  • Góð íslenskukunnátta er skilyrði. Miðað er við stig C1 skv. evrópska tungumálarammanum
  • Góð samskiptahæfni
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Góð tölvukunnátta
Fríðindi í starfi
  • Á Bæjarbóli er full vinnustytting eða 4 klst. á viku. Hluta styttingar er safnað í vetrarfrí, páska- og jólafrí. Sérstök skráning barna er í vetrar- og jólafríi en lokað er í dymbilviku, sem og 2. janúar vegna styttingar starfsfólks.
  • Leikskólinn lokar kl 16:00 á föstudögum en 16:30 aðra daga.
  • Forgangur í leikskóla fyrir börn starfsmanna með lögheimili í Garðabæ og í 75% starfshlutfalli eða meira.
  • 40% afsláttur á leikskólagjöldum fyrir starfsmenn með lögheimili í Garðabæ.
  • Eftir þrjá mánuði í starfi getur starfsfólk fengið frítt árskort í sundlaugar bæjarins, bókasafnskort og menningarkort í Hönnunarsafn Íslands. Auk þess sem hægt er að fá styrk til hreyfingar eftir sex mánuði í starfi.
  • Í leikskólum Garðabæjar er 25% stöðugildi vegna snemmtækrar íhlutunnar á hverri deild og aukalegt 50% stöðugildi á yngstu deild ef fjöldi barna á aldrinum 1-2 ára eru fleiri en tíu á deild.
Advertisement published22. May 2025
Application deadline5. June 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Very good
Location
Bæjarbraut
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.TeachingPathCreated with Sketch.Project management
Professions
Job Tags