
MariConnect ehf.
Kerfisstjóri / Tæknimaður
Kerfisstjóri / Tæknimaður óskast – MariConnect ehf.
Vilt þú bætast í teymi tæknimanna Mariconnect og vinna með Linux, netkerfi og fjarskiptalausnir á sjó og landi?
Yfirlit:
MariConnect ehf. leitar að öflugum og lausnamiðuðum kerfisstjóra eða tæknimanni með djúpa tækniþekkingu og reynslu af rekstri og þjónustu netkerfa. Starfið felur í sér fjölbreytt verkefni í kringum Linux-kerfi, netöryggi og fjarskiptalausnir fyrir skip. Við leitum að einstaklingi sem getur bæði þjónustað viðskiptavini og byggt upp og stutt við kjarnaþjónustur fyrirtækisins.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Uppsetning og rekstur netþjóna sem keyra miðlægar þjónustur (Linux, VM og/eða container-umhverfi)
- Viðhald og bilanagreining í fjarvinnu á net- og fjarskiptabúnaði hjá viðskiptavinum, einkum um borð í skipum
- Lausnaleit og tækniaðstoð vegna vandamála viðskiptavina
- Innleiðing og eftirfylgni á net- og fjarskiptalausnum með áherslu á þráðlaus fjarskipti (5G, Starlink, WiFi o.fl.)
- Vinna að sjálfvirknivæðingu og umbótum á tækniumhverfi
Menntunar- og hæfniskröfur
- Djúp þekking og reynsla af Linux-stýrikerfum (t.d. Ubuntu, CentOS,Debian)
- Þekking og reynsla af IP routing
- Þekking á netöryggi og eldveggjum (iptables, nftables, VPN-lausnir o.fl.)
- Grunnþekking og reynsla af fjarskiptalausnum eins og 5G, Starlink, WiFi og tengingum við netkerfi um borð í skipum
- Reynsla af þjónustu og lausnamiðaðri vinnu með viðskiptavinum
- Góð samskiptahæfni og skipulögð vinnubrögð
- Kostur ef viðkomandi hefur reynslu af scripting (t.d. Bash, Python) og sjálfvirknivæðingu
Fríðindi í starfi
- Krefjandi og áhugavert starf í litlu og sérhæfðu tæknifyrirtæki
- Áhrif á tækniákvarðanir og þróun innviða
- Góðan búnað og stuðning við starfsþróun
- Sveigjanleika og raunverulegt rými til að hafa áhrif
Advertisement published23. July 2025
Application deadline23. August 2025
Language skills

Required

Required
Location
Höfðabakki 9D, 110 Reykjavik
Type of work
Work environment
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Sérfræðingur í gagnavöruhúsum
Advania

Hugbúnaðarsérfræðingur í mannauðslausnum
Advania

Director of Software Delivery | Embla Medical
Embla Medical | Össur

Linux kerfisstjóri
Landsbankinn

Hugbúnaðarsérfræðingur
Icelandia

Kerfisstjóri
Landsnet hf.

Kerfisstjóri/geimfari með öryggi á heilanum
Atmos Cloud

Software Developer
Men&Mice

Vefforritun í TypeScript
Moodup

Software Engineer
Teledyne Gavia ehf.

Finance Digital Solution Manager
Icelandair

Infrastructure Engineer
CCP Games