Embla Medical | Össur
Embla Medical | Össur
Embla Medical | Össur

Director of Software Delivery | Embla Medical

Viltu taka þátt í verkefnum með það að markmiði að bæta hreyfanleika fólks?

Global IT teymi Embla Medical leitar að Director of Software Delivery til að leiða hugbúnaðarþróunardeild fyrirtækisins.

Deildin sem um ræðir heldur utan um þróun á kerfum sem styðja við allt fyrirtækið, s.s. BC, Salesforce, BI og samþættingarlagið.

Við leitum að manneskju sem hefur haldbæra reynslu af því að stuðla að umbótum og framþróun á ferlum í hugbúnaðarþróun, s.s. gæðaferlum (e. QA), sjálfvirknivæðingu, útgáfustjórnun ásamt stöðugri samþættingu og útgáfu (e. CI/CD). Viðkomandi þarf að brenna fyrir því að búa til skilvirk teymi sem leiða af sér hágæða afurðir og einnig hamingjusamt og afkastamikið starfsfólk. Við leitum að aðila sem elskar að skapa skýra framtíðarsýn en veit að leiðin að þeirri sýn er ekki alltaf auðveld og krefst bæði þrautseigju og tíma til að fá fólk með á vagninn.

Viðkomandi mun leiða teymi af reyndum leiðtogum í hugbúnaðarþróun, sem sjálf leiða sín eigin teymi af starfsfólki og verktökum. Hlutverkið heyrir undir VP of Global IT og verður hluti af samheldnum hópi stjórnenda í Global IT sem öll brenna fyrir tæknivegferð og framtíðarsýn Embla Medical.

Við bjóðum upp á sveigjanlegt vinnufyrirkomulag og umhverfi, með höfuðstöðvar í Reykjavík. Það má búast við einhverjum alþjóðlegum ferðalögum.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Stýra hugbúnaðarþróunardeild Embla Medical 

  • Leiða hóp stjórnenda og sérfræðinga í hugbúnaðarþróun, og gefa þeim bæði stuðning og áskorun sem hjálpar þeim að vaxa í starfi 

  • Eignarhald á stöðu og framvindu verkefna, sem og hvernig starfsfólki er úthlutað í þau verkefni 

  • Kostnaðarstýring alls þess kostnaðar sem snýr að deildinni 

  • Stuðla að sterkri samvinnu innan IT og við aðra hagsmunaaðila 

  • Taka þátt í að móta stefnu og tækniþróun sem Embla Medical þarf til að ná sínum framtíðarmarkmiðum 

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi, t.d. á sviði tölvunarfræði 

  • A.m.k. 10 ára starfsreynsla innan hugbúnaðarþróunar eða tengdra starfa með reynslu af stjórnun 

  • Reynsla af að vinna með ERP og CRM kerfi, helst bæði 

  • Reynsla af bæði agile og waterfall vinnuaðferðum sem og nútímaþróunarferlum, s.s. CI/CD, DevOps og QA sjálfvirkni 

  • Reynsla af því að leiða fólk sem sjálft leiðir sín eigin teymi 

  • Gott viðskiptavit og reynsla af því að vinna náið með stjórnendum bæði innan og utan IT  

  • Framúrskarandi samskiptahæfni og mjög góð enskukunnátta eru skilyrði   

  • Áhugi á stefnum og straumum í tækni og hugbúnaðarþróun í heiminum í dag  

  • Reynsla af því að halda utan um IT kostnað 

  • Reynsla af því að starfa í alþjóðlegu umhverfi er æskileg

Fríðindi í starfi
  • Líkamsræktarstyrkur  

  • Samgöngustyrkur  

  • Líkamsræktaraðstaða, hjólageymsla og golfhermir  

  • Mötuneyti með fjölbreyttu úrvali af mat 

  • Frí heilsufars-mæling og ráðgjöf 

  • Árlegur sjálfboðaliðadagur  

  • Starfsþróun
  • Öflugt félagslíf

  • Sveigjanleiki
Advertisement published5. August 2025
Application deadline24. August 2025
Language skills
EnglishEnglish
Required
Advanced
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Grjótháls 5, 110 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.AgilePathCreated with Sketch.CRMPathCreated with Sketch.LeadershipPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.Computer scientist
Professions
Job Tags