Advania
Advania
Advania

Hugbúnaðarsérfræðingur í mannauðslausnum

Hjá Mannauðslausnum starfar öflugur hópur sérfræðinga sem hefur áralanga reynslu af ráðgjöf og þjónustu mannauðslausna. Við leitum nú að öflugum bakendaforritara í eitt af teymunum í þróun og samþættingu hjá Mannauðslausnum.

Starfssvið

Í starfinu felst útfærsla á tæknilegri lausn með áherslu á gæði, skalanleika og góða notendaupplifun. Teymið vinnur að því ásamt vörustjóra að greina og hanna útfærslu á virkni og móta viðtökuskilyrði.

Þú munt vinna náið með reynslumiklu fólki þar sem mikil áhersla er lögð á gæði, öryggi og notendavænar lausnir. Við leggjum áherslu á gott teymisstarf, sjálfstæði og frumkvæði.

Mannauðslausnir

Mannauðslausnir Advania þróa og þjónusta lausnir sem hjálpa vinnuveitendum að auka árangur og ánægju starfsfólks og stjórnenda. Hjá okkur starfar öflugur hópur sérfræðinga með áratuga reynslu af þróun og ráðgjöf á sviði launa- og mannauðsmála.

Hæfnikröfur

  • Háskólamenntun í tölvunarfræði eða hugbúnaðarverkfræði
  • 5+ ára reynsla af forritun og hugbúnaðargerð
  • Krafa um þekkingu á C#, SQL og .NET
  • Þekking á React og JavaScript æskileg
  • Reynsla af AWS, GitHub, Visual Studio og SQL Server Management Studio æskileg
  • Góð íslensku- og enskukunnátta
  • Gott skipulag, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum
  • Færni og vilji til að tileinka sér nýja þekkingu og vinnubrögð

Ef þú hefur áhuga á starfinu en uppfyllir ekki allar kröfur um menntun eða reynslu hvetjum við þig samt sem áður til að sækja um. Þú gætir verið rétti einstaklingurinn sem við leitum að í þetta eða annað starf.

Advertisement published5. August 2025
Application deadline17. August 2025
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Guðrúnartún 10, 105 Reykjavík
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch..NETPathCreated with Sketch.C#PathCreated with Sketch.JavaScriptPathCreated with Sketch.ReactPathCreated with Sketch.SQL
Professions
Job Tags