

Hugbúnaðarsérfræðingur
Alp hf., sem rekur Avis bílaleiguna á Íslandi, leitar að öflugum hugbúnaðarsérfræðingi til að taka við ábyrgð á hugbúnaðarþróun og tæknilegum innviðum félagsins.
Þetta er fjölbreytt og krefjandi staða þar sem viðkomandi er eini forritari félagsins og ber bæði ábyrgð á daglegri þróun kerfa og stefnumótun í tæknimálum. Starfið hentar einstaklingi sem hefur gaman af sjálfstæðum vinnubrögðum, vill hafa áhrif á tæknistefnu félagsins og kann að forgangsraða verkefnum frá hugmynd til framkvæmdar.
• Þróun, viðhald og rekstur á hugbúnaðarkerfum félagsins
• Stefnumótun og forgangsröðun í tæknimálum í samráði við stjórnendur
• Þróun og umsjón með bókunarkerfi og innri kerfum
• Samþætting við ytri kerfi (Avis-kerfi, greiðslukerfi, bókhaldskerfi o.fl.)
• Umsjón með tæknilegum innviðum, skýjaþjónustum og rekstraröryggi
• Ábyrgð á upplýsingaöryggi og að persónuverndarkröfur (GDPR) séu uppfylltar
• Samskipti og samstarf við utanaðkomandi forritara, ráðgjafa og þjónustuaðila
• Tæknileg ráðgjöf til annarra deilda.
• Áframhaldandi þróun á fjárhagsupplýsingakerfinu Business Central
• Reynsla af hugbúnaðarþróun, helst í einhverri af eftirfarandi tækni: .NET / C#, Python eða JavaScript / TypeScript (React, Node.js)
• Reynsla af vinnu með gagnagrunnum (SQL) og samþættingu kerfa
• Reynsla á Microsoft 365, Power Automate, Power PI og Power Apps
• Þekking á skýjaþjónustum (AWS, Azure eða sambærilegt)
• Skilningur á upplýsingaöryggi og persónuvernd
• Sjálfstæð vinnubrögð, frumkvæði og skipulagshæfni
• Góð samskiptahæfni og hæfni til að vinna þvert á deildir
• Gott vald á íslensku og ensku
• Fjölbreytt og krefjandi starf hjá rótgrónu félagi
• Mikið sjálfstæði og tækifæri til að móta tæknistefnu félagsins
• Gott vinnuumhverfi í Holtagörðum
• Tækifæri til faglegrar þróunar
• Náið samstarf við stjórnendur og þvert á deildir
Icelandic
English










