

Ráðgjafi í netöryggisteymi Deloitte
Við leitum að sérfræðingi með brennandi áhuga á netöryggi og stafrænni þróun til að ganga til liðs við vaxandi teymi sérfræðinga okkar.
Við veitum heildstæða netöryggisráðgjöf með áherslu á stjórnun, áhættustýringu og úttektir. Við leitum að einstaklingi sem hugsar í lausnum, er tilbúinn að bretta upp ermar og taka þátt í að efla öryggisvarnir viðskiptavina og draga úr netöryggisáhættu.
Meðal verkefna sem netöryggisráðgjöf sinnir eru eftirfarandi:
- Alhliða ráðgjöf og stefnumótun á sviði netöryggis og rekstrarsamfellu
- Mat á stjórnarháttum og stöðu netöryggisráðstafana
- Úttektir og gloppugreiningar á fylgni við lög, reglur og staðla
- Áhættumat og áhættustýring netöryggisáhættu
- Stjórnendaþjálfun og fræðsla
Sem hluti af netöryggisteymi Deloitte muntu aðstoða viðskiptavini við að innleiða, efla og fylgja netöryggiskröfum og styðja þá í gegnum áskoranir sem leiða af breyttum netógnum og rekstrarumhverfi ásamt því að vinna að bættum viðnámsþrótti og rekstrarsamfellu.
Hjá Deloitte færð þú tækifæri til að vera hluti af öflugu netöryggissamfélagi á alþjóðavísu, vinna með leiðandi fyrirtækjum og stofnunum, kynnast fjölbreyttum atvinnugreinum og taka þátt í netöryggisverkefnum sem skipta sköpum fyrir rekstrarsamfellu og traust viðskiptavina
- Háskólamenntun eða sambærileg reynsla sem nýtist í starfi
- Þekking og reynsla af netöryggismálum, regluverki og/eða stjórnunarkerfum s.s. DORA, NIS2, CRA, AI Act og NIST
- Góð greiningarhæfni
- Mjög góð samskiptafærni og vilji til samvinnu
- Fagmennska, sjálfstæði og vönduð vinnubrögð
- Hæfni í að setja fram skýran, hnitmiðaðan og faglegan texta og miðla upplýsingum á skiljanlegan hátt
- Áhugi á gervigreind, áhættustýringu og innri/ytri úttektum
- Gott vald á íslensku og ensku, bæði töluðu og rituðu máli
- Viðeigandi vottanir (ISO27001; CISSP, CISA, CISM, Security+ eða sambærilegar vottanir) eru kostur
- Metnaður til að veita framúrskarandi þjónustu og skapa góða upplifun fyrir viðskiptavini
Að auki bjóðum við upp á:
- Frábært mötuneyti með niðurgreiddum morgunmat og hádegismat
- Veglegan líkamsræktarstyrk, virkt starfsmannafélag og gott félagslíf
- Góðan aðbúnað í höfuðstöðvum okkar á Dalvegi
- Styrki til nýbakaðra foreldra
- Sjálfboðastarf til áhrifa – launaður dagur til að sinna sjálfbærniverkefnum
- Fjölbreytt áhugamál samstarfsfélaga þvert á félagið t.d. hlaupahóp, fótbolti í hádeginu og leikjaherbergi
Icelandic
English










