Deloitte
Deloitte
Deloitte

Ráðgjafi í persónuverndarteymi Deloitte

Við leitum að einstaklingi með brennandi áhuga á persónuvernd og upplýsingaöryggi til að ganga til liðs við vaxandi teymi sérfræðinga okkar.

Við veitum heildstæða ráðgjöf á sviði persónuverndar með áherslu á uppbyggingu og áhættustýringu persónuverndar og innleiðingu verklags og öryggisráðstafana sem styðja við örugga og ábyrga meðferð persónuupplýsinga.

Verkefnin eru fjölbreytt og fela meðal annars í sér ráðgjöf, greiningar, úttektir og innleiðingu umbóta hjá fyrirtækjum og opinberum aðilum. Við leitum að einstaklingi sem hugsar í lausnum, er tilbúinn að bretta upp ermar og taka þátt í að styðja viðskiptavini við draga úr áhættu við vinnslu persónuupplýsinga og uppfylla kröfur laga og reglna á sviði persónuverndar.

Helstu verkefni og ábyrgð

Helstu verkefni felast í alhliða ráðgjöf og áhættustýringu á sviði persónuverndar, greiningu á fylgni við lög og reglur og þróun verklags sem styður við örugga og ábyrga meðferð persónuupplýsinga, svo sem:  

  • Veita fyrirtækjum og opinberum aðilum alhliða ráðgjöf á sviði persónuverndar 
  • Meta, greina og skjalfesta ferla, verklag og áhættur tengdar vinnslu persónuupplýsinga 
  • Framkvæma gloppugreiningar, úttektir og meta fylgni við lög, reglur og staðla á sviði persónuverndar 
  • Veita ráðgjöf um túlkun á löggjöf, reglum, stöðlum og tilmælum og úrlausn álitaefna  
  • Vinna náið með viðskiptavinum og veita þeim ráðgjöf og stuðning í fjölbreyttum verkefnum á sviði persónuverndar 
  • Sinna verkefnum tengdum útvistuðu hlutverki persónuverndarfulltrúa fyrir viðskiptavini Deloitte 
  • Vera í samskiptum við persónuverndaryfirvöld og aðstoða viðskiptavini í tengslum við kvartanir, fyrirspurnir eða úttektir Persónuverndar 
  • Ráðleggja viðskiptavinum um viðeigandi viðbrögð við öryggisbrestum og aðstoða við úrlausn og eftirfylgni þeirra 
  • Aðstoða við úttektir innri endurskoðunar hjá viðskiptavinum Deloitte á fylgni við lög og reglur, m.a. á sviði persónuverndar- og peningaþvættislaga 
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi t.d. lögfræði eða önnur viðeigandi menntun/reynsla  
  • Þekking á persónuverndarlögum og lagaframkvæmd á því sviði   
  • Lausnamiðuð hugsun, sjálfstæði í starfi og geta til að halda mörgum boltum á lofti í einu  
  • Góð greiningarhæfni 
  • Mjög góð samskiptafærni og vilji til samvinnu  
  • Fagmennska, sjálfstæð og vönduð vinnubrögð 
  • Hæfni í að setja fram skýran, hnitmiðaðan og faglegan texta og miðla upplýsingum á skiljanlegan hátt 
  • Skilningur og áhugi á upplýsingaöryggi, netöryggi og regluverki á því sviði er kostur  
  • Metnaður til að veita framúrskarandi þjónustu og skapa góða upplifun fyrir viðskiptavini 
  • Mjög góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti er skilyrði. 
Fríðindi í starfi

Að auki bjóðum við upp á:  

  • Frábært mötuneyti með niðurgreiddum morgunmat og hádegismat 
  • Veglegan líkamsræktarstyrk, virkt starfsmannafélag og gott félagslíf 
  • Góðan aðbúnað í höfuðstöðvum okkar á Dalvegi 
  • Styrki til nýbakaðra foreldra 
  • Sjálfboðastarf til áhrifa – launaður dagur til að sinna sjálfbærniverkefnum 
  • Fjölbreytt áhugamál samstarfsfélaga þvert á félagið t.d. hlaupahóp, fótbolti í hádeginu og leikjaherbergi   

  

Advertisement published2. June 2026
Application deadline11. June 2026
Language skills
EnglishEnglish
Required
Advanced
IcelandicIcelandic
Required
Advanced
Location
Dalvegur 30, 201 Kópavogur
Type of work
Skills
PathCreated with Sketch.ReliabilityPathCreated with Sketch.DrivePathCreated with Sketch.ProfessionalismPathCreated with Sketch.ProactivePathCreated with Sketch.Artificial intelligencePathCreated with Sketch.Clean criminal recordPathCreated with Sketch.Implementing proceduresPathCreated with Sketch.Human relationsPathCreated with Sketch.Computer securityPathCreated with Sketch.Structuring data processingPathCreated with Sketch.Meticulousness
Work environment
Professions
Job Tags