Dómsmálaráðuneytið
Dómsmálaráðuneytið
Dómsmálaráðuneytið

Embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu laust til umsóknar

Auglýst er laust til umsóknar embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu. Leitað er að öflugum, framsýnum og umbótadrifnum leiðtoga sem hefur sterka hæfni til að leiða fjölbreyttan hóp starfsfólks í gegnum þróun og umbætur, skapa traust og samstöðu og stuðla að faglegri og skilvirkri löggæslu.

Dómsmálaráðherra hefur kynnt að fyrirhugaðar séu breytingar á skipulagi lögreglu. Áform eru um að fækka lögregluembættum úr níu í fjögur til fimm og mynda þannig stærri og öflugri embætti um land allt. Í þessum áformum felst að sameining lögregluembætta á suðvesturhorni landsins verði skoðuð sérstaklega.

Framundan eru því breytingar á skipulagi löggæslu sem kalla á markvissa breytingastjórnun, árangursmiðaða nálgun og getu til að leiða starfsfólk í gegnum umbreytingar. Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu mun gegna stóru hlutverki við þessar breytingar.

Helstu verkefni og ábyrgð

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu fer með stjórn lögregluliðs í sínu umdæmi. Lögreglustöðvar innan umdæmisins eru fjórar talsins. Hlutverk lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu er að annast daglega stjórn og rekstur lögreglunnar í umdæminu og ber hann ábyrgð á framkvæmd lögreglustarfa innan þess. Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu á sæti í lögregluráði, sem hefur það hlutverk að efla samráð á meðal lögreglustjóra og samhæfa störf lögreglu.  

Umsækjendur um embættið skulu fullnægja skilyrðum 2. mgr. 28. gr. lögreglulaga nr. 90/1996.

Menntunar- og hæfniskröfur
  • Öflug leiðtogahæfni og farsæl reynsla af stjórnun er skilyrði. 
  • Þekking, reynsla og árangur á sviði rekstrar er kostur.
  • Þekking og reynsla af umbóta- og breytingastarfi er kostur.   
  • Þekking á verkefnum lögreglu er kostur.  
  • Rík samskipta- og samstarfshæfni.
  • Fagmennska, frumkvæði, drifkraftur og lausnamiðuð hugsun.
  • Mjög gott vald á íslensku og ensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti.
Advertisement published2. June 2026
Application deadline26. June 2026
Language skills
IcelandicIcelandic
Required
Expert
EnglishEnglish
Required
Advanced
Location
Hverfisgata 113
Type of work
Professions
Job Tags