
Húsnæðis- mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS)
Húsnæðis- mannvirkja og skipulagsstofnun hefur umsjón með stjórnsýsluverkefnum á sviði húsnæðismála, fasteigna, mannvirkjamála, rafmagnsöryggismála, skipulagsmála og mála er varða byggingarvörur og brunavarnir.
Stofnuninni er ætlað að stuðla að því að jafnvægi ríki á húsnæðismarkaði, m.a. með húsnæðisstuðningi, lánveitingum, rannsóknum, upplýsingagjöf, áætlanagerð og eftirliti. Einnig skal stofnunin leitast við að tryggja að almenningur hafi aðgang að öruggu og vistvænu húsnæði á viðráðanlegu verði og í samræmi við þarfir hvers og eins, óháð efnahag og búsetu, þannig að almenningur hafi raunverulegt val um búsetuform.
Stofnunin gegnir jafnframt samræmingarhlutverki, sinnir samstarfi við sveitarfélög um stjórnsýslu húsnæðis-og mannvirkja- og skipulagsmála og stuðlar að fyrirsjáanleika, skilvirkni og gæðum mannvirkjagerðar. Húsnæðis- mannvirkja og skipulagsstofnun annast umsýslu Húsnæðissjóðs. Starfsstöðvar stofnunarinnar eru í Reykjavík, Akureyri og á Sauðárkróki og eru starfsmenn 190 talsins.

Framendaforritari
Vilt þú starfa á nútímalegum vinnustað sem leggur áherslu á framúrskarandi þjónustu, nýsköpun, miðlun upplýsinga og stafræna þróun, og ber ábyrgð á fjölbreyttum málaflokkum?
Við óskum eftir framendaforritara til þess að ganga til liðs við öflugt upplýsingatæknisvið hjá HMS. Fjölbreytt og spennandi verkefni eru fram undan við nýþróun og viðhald hugbúnaðarlausna sem eru hluti af framtíðarsýn stofnunarinnar og skipta sköpum fyrir samfélagið.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Þróun og viðhald stafrænna lausna HMS og þá sérstaklega vef HMS og tengdum vefum
- Þróun og smíði notendaviðmóts með áherslu á notendamiðaða hönnun og aðgengi
- Samskipti við vörueigendur, hugbúnaðarteymi, birgja og fleiri hagaðila
- Þátttaka í áframhaldandi uppbyggingu hönnunarkerfis og viðmótssafns HMS
- Þátttaka í áframhaldandi umbótum og þróun á stafrænu umhverfi HMS
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun á sviði tölvunarfræði, verkfræði eða tengdum greinum sem nýtist í starfi [EÓ1]
- Reynsla af smíði notendaviðmóts í React umhverfi
- Þekking á Typescript, React, CSS í JS(Stylex), NextJs, NextAuth/BetterAuth
- Skilningur á aðgengismálum og notendaupplifun ásamt áhuga á vefmálum
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð og metnaður til að ná árangri í starfi
- Góð samskipta- og samstarfshæfni, þjónustulund og jákvætt viðhorf
- Gott vald á íslensku og ensku
Advertisement published2. June 2026
Application deadline12. June 2026
Language skills
IcelandicRequired
EnglishRequired
Location
Borgartún 21, 105 Reykjavík
Type of work
Professions
Job Tags
Similar jobs (12)

Sérfræðingur í reglumálum og regluvörslu / Regulatory Affairs & Compliance Specialist
Nicopods ehf

Verk- eða tæknifræðingur
First Water

Sérfræðingur í kostnaðarstýringu
Landsvirkjun

Distributed Systems Engineer
Fenris Creations

Hugbúnaðarsérfræðingur
Avis og Budget

Sales Engineer
JBT Marel

Senior Development Engineer
DTE

Ráðgjafi í netöryggi
Advania

Sérfræðingur í stafrænum samskiptum og miðlun
Gildi

Jarðvarmasérfræðingur
EFLA hf

Sérfræðingur í veituhönnun
COWI

Innkaupa- og rekstrarsérfræðingur hjá Mosfellsbæ
Mosfellsbær